Innlent

Verða að fá hagstæð langtímalán til jarðarkaupa

Bændur verða að hafa aðgang að hagstæðum langtímalánum til jarðakaupa, ef koma á í veg fyrir að stóreignamenn eignist allar bújarðir. Þetta segir helsti kúabóndi Vopnafjarðar sem segir brýnt að skipulagsyfirvöld skilgreini hvaða land megi taka undir aðra starfsemi.

Fjárfestir, búsettur í Lúxemborg, og aðilar honum tengdir, hafa á fáum árum eignast fjórðung allra jarða í Vopnafirði. Björn Halldórsson, bóndi í Engihlíð, óttast að þessi þróun leiði til þess að verulega dragi úr matvælaframleiðslu í íslenskum sveitum. Hann telur brýnt að gripið verði í taumana.

Björn segir vandann meðal annars þann að þeir sem vilji stundað búskap hafi ekki efni á jarðakaupum. Þeir þurfi aðgang að þolinmóðu fjármagni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×