Innlent

Þrír sýknaðir í Kompásmáli

Andri Ólafsson skrifar

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag þrjá karlmenn af ákærum um tilraun til kynferðisbrota. Ákæran var byggð á tálbeitugögnum frá sjónvarpsþættinum Kompási.

Allir þrír mennirnir voru sýndir í sjónvarpsþættinum Kompás á Stöð 2 fara inn í íbúð þar sem þeir stóðu í þeirri trú að væri að finna ólögráða stúlku sem hafði verið í samskiptum við þá á netinu dagana áður.

Kompás afhenti lögreglunni gögn úr þættinum og myndefni og voru þau höfð til grundvallar ákæru Ríkissaksóknara sem ákærði mennina fyrir tilraun til kynferðisbrots.

Héraðsdómur komst hins vegar í dag að þeirri niðurstöðu að vafi leiki á því hvort lögreglu hafi verið heimilt að byggja rannsókn sína á gögnum Kompáss.

Héraðsdómur Reykjavíkur tók það jafnframt fram að lögreglu hefði verið óheimilt að afla gagna á sama hátt og Kompás gerði, það er að notast við tálbeitur til að draga fram menn sem hafa í hyggju að brjóta gegn börnum.

Einn þremenninganna sem sýknaðir voru í dag var dæmdur fyrir vörslu á barnaklámi sem fannst við húsleit á heimili hans.

Tveir til viðbótar eru til rannsóknar vegna gagna sem Kompás lét lögreglu í té.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×