Innlent

Hafa mánuð til að meta Jón nauðgara

Jón Pétursson slasaðist illa í slysi í Egyptalandi og vill láta kanna hvort eftirköst þess slyss geri það að verkum að hann sé ósakhæfur.
Jón Pétursson slasaðist illa í slysi í Egyptalandi og vill láta kanna hvort eftirköst þess slyss geri það að verkum að hann sé ósakhæfur.

Tveir matsmenn hafa verið dómkvaddir til að meta hvort Jón Pétursson, sem hefur fengið tvo fimm ára dóma fyrir nauðganir á skömmum tíma, sé í raun ósakhæfur. Þeir hafa rétt rúman mánuð til að meta Jón því seinna mál hans verður tekið fyrir í Hæstarétti 28. nóvember næstkomandi.

Matsmönnunum tveimur, sem eru geðlæknir og taugasálfræðingur, hefur verið falið að meta hvort skaði á framheila eftir slys sem Jón varð fyrir í Egyptalandi fyrir nokkrum árum hafi orðið þess valdandi að hann sé ósakhæfur.

Eins og áður sagði hefur Jón fengið tvo fimm ára dóma fyrir að nauðga á hrottafenginn hátt tveimur fyrrverandi sambýliskonum sínum. Fyrri dómurinn var staðfestur af Hæstarétti en áfrýjun þess síðari verður tekin fyrir eftir mánuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×