Vilja herða eftirlit til að tryggja réttindi erlenda starfsmanna 3. september 2007 20:15 MYND/Vilhelm
Brotalamir í framkvæmd laga um réttindi erlendra starfsmanna valda því að sum fyrirtæki koma sér hjá því að skrá erlenda verkamenn hérlendis. Um er að ræða innlend og erlend fyrirtæki og sum þeirra hafa margsinnis gerst sek um að brjóta á réttindum starfsmanna. Þverpólitísk samstaða náðist innan félags- og tryggingamálanefndar í dag um að herða eftirlit og gera lögin skilvirkari. „Þetta eru sömu aðilarnir sem leika þennan ljóta leik," sagði Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri grænna og fulltrúi flokksins í félags- og tryggingamálanefnd, í samtali við Vísi. „Það þarf að bæta lögin og eftirfylgni þeirra." Fram kom í fjölmiðlum í síðustu viku að tugir starfsmanna við Kárahnjúka séu án tilskilinna leyfa hér á landi. Félags- og tryggingamálanefnd fundaði um málið í dag og ræddi nefndin meðal annars við fulltrúa Vinnumálastofnunar, Alþýðusambands Íslands. og yfirtrúnaðarmann við Kárahnjúka. Að sögn Ögmundar var fundurinn í dag afar gagnlegur. „Það var enginn ágreiningur milli manna og það náðist þverpólitísk samstaða um að koma þessum málum í lag." Guðbjartur Hannesson, formaður félags- og tryggingamálanefndar, sagði í samtali við Vísi að brotalamir í framkvæmd laga um réttindi erlenda starfsmanna geri það að verkum að réttindi þeirra séu ekki alltaf tryggð. „Það er erfitt að glíma við fyrirtæki sem koma inn á markaðinn í skamman tíma og beita fyrir sig ákvæðum um að hingað megi koma fólk í stuttan tíma til að vinna. Þegar á að ganga á fyrirtækin varðandi réttindi starfsmanna þá eru þau farin úr landi." Guðbjartur segir engar endanlegar tölur liggja fyrir um hversu margir erlendir verkamenn séu hér á landi án þess að vera skráðir. Hann bendir á að nú sé nefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins að störfum sem eigi að leggja fram tillögur um hvernig megi bæta eftirfylgni laga um réttindi erlendra starfsmanna. Nefndin á að ljúka störfum 1. nóvember næstkomandi. „Eins og staðan er núna ná eftirlitsstofnanir ekki til verkamannanna. Það þarf að bæta úr þessu og samstilla átakið til að eftirlitið virki betur. Almennt eru þó fyrirtæki að standa sig með miklum sóma og þetta eru einstakir hnökrar sem þarf að slípa til."
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sjá meira