Rannsóknarleyfi á Gjástykkissvæði felur ekki í sér leyfi til borana 3. september 2007 18:32 Landsvirkjun stefnir að því að hefja boranir á svæðinu í haust. MYND/365
Rannsóknarleyfi á Gjástykkissvæði felur ekki í sér leyfi til rannsóknarframkvæmda á svæðinu hvort sem er yfirborðsrannsóknir eða boranir. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá iðnaðarráðuneytinu. Ákvæði laga um mat á umhverfisáhrifum gilda um allar framkvæmdir rannsóknarleyfishafa þrátt fyrir útgáfu rannsóknarleyfis. Í yfirlýsingu iðnaðarráðuneytisins kemur fram að með útgáfu rannsóknarleyfis á Gjástykkissvæði í grennd við Mývatn hafi ekki verið gefið leyfi til rannsóknaframkvæmda á svæðinu. Þá segir ennfremur að lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu hafi hvorki verið ætlað að taka með heildstæðum hætti á umhverfismálum, náttúruvernd og skipulags- og byggingarlögum né hrófla við eða víkja úr vegi þeirri löggjöf. Framkvæmdir rannsóknarleyfishafi í kjölfar útgáfu rannsóknarleyfis séu því háðar leyfum þar til bærra yfirvalda og lúta ákvæðum laga um mat á umhverfisáhrifum. Landvernd og Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi óskuðu í síðustu viku eftir því við umhverfisnefnd og iðnaðarefnd Alþingis að opinber rannsókn verði gerð á leyfi til jarðhitarannsókna á Gjástykkissvæðinu. Jón Sigurðsson, fyrrverandi iðnaðarráðherra, gaf Landsvirkjun leyfi til rannsókna tveimur dögum fyrir síðustu kosningar. Landsvirkjun stefnir að því að hefja boranir á svæðinu í haust.
Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Innlent Málið sem Trump getur ekki losað sig við Erlent Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Innlent Færir nýársboðið fram á þrettándann Innlent Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Innlent Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar Innlent Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Innlent Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Innlent Fleiri fréttir Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Ferðaþjónusta blómstrar í uppsveitum Árnessýslu „Þetta er bara ljótt“ Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Ætlar að skýra hvenær rjúfa megi þagnarskyldu Þagnarskylda heilbrigðisstarfsfólks og öryggisgæsla við grunnskóla Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Vegagerðin segir flóðin í Vík fyrirséð Fjölmiðlar, bókmenntir og hægrimennska á Sprengisandi „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Sjá meira