Byltingarkenndur íslenskur blöndungur sparar mikið bensín og dregur úr mengun 3. september 2007 19:00
Nýr íslenskur blöndungur getur valdið byltingu í sparnaði á eldsneyti auk þess sem hann dregur verulega úr mengun. Markaður fyrir þessa íslensku uppfinningu er töluvert stærri en heimsmarkaður á nýjum bifreiðum. Flestir kannast við vandræðin sem fylgja því að gangsetja venjulega sláttuvél. Þær hósta og hiksta og ætla aldrei í gang. Mökkurinn gengur líka aftur af þeim í stórum bólstrum. Ástæðan fyrir því að sláttuvélar framtíðarinnar munu rjúka í gang í fyrsta starti er sú að með nýjum íslenskum blöndungi er eldsneytinu úðað með nýrri tækni inn í brunahólf mótorsins. Gamla lagið er þannig að því er sprautað inn og neistinn nær því illa að kveikja í eldsneytinu. Með nýja laginu hrekkur vélin í gang ísköld og miklu minni útblástur er frá henni. Íslenska fyrirtækið Fjölblendir á heiðurinn af þessari nýju tækni. Markaðurinn fyrir þessa tegund blöndunga er gríðarlega stór enda knýja smávélar dælur, vélsagir, ljósavélar, sláttuvélar og jafnvel mótorhjól. Það sem málið snýst um er lítið sakleysislegt tæki sem getur haft gríðarleg áhrif í bættri umgengni við umhverfið. Það er að verulegu leyti úr plasti. Þessi litli blöndungur gerir kleift að nýta eldsneyti allt að 20 prósent betur en þekkst hefur. Allir aðilar sem hafa skoðað þessa lausn hafa undrast og sýnt henni mikinn áhuga að sögn Halldórs Kvaran framkvæmdastjóra hjá Fjölblendi. Fjölblendir hefur þegar skráð markaðs- og einkaleyfi fyrir nýja blöndunginn og samningar um sölu á markaðsleyfum á blöndungnum ganga afar vel að sögn Halldórs.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Fleiri fréttir „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Sjá meira