Innlent

350 sektaðir fyrir hraðakstur í Hvalfjarðargöngum

MYND/Pjetur

350 ökumenn sem fóru um Hvalfjarðargöng um helgina mega eiga von á sektum vegna hraðaksturs. Þeir náðust allir á hraðamyndavél í göngunum.

Eftir því sem segir í frétt lögreglunnar var meðalhraði hinna brotlegu tæplega 84 kílómetrar á klukkustund en leyfður hámarkshraði í göngunum er 70 kílómetrar. Tuttugu og átta ökumenn óku á yfir 90 kílómetra hraða og tveir á yfir 100 en sá sem hraðast ók var á 103 kílómetra hraða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×