Forstjóri Orkuveitunnar í sjö mánaða leyfi 3. september 2007 15:19 Guðmundur verður í forsvari fyrir Reykjavík Energy Invest. MYND/Heiða
Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, mun taka sér leyfi frá störfum næstu sjö mánuði. Á meðan á leyfinu stendur mun Guðmundur starfa sem forstjóri Reykjavík Energy Invest. Samkvæmt heimildum Vísis hefur verið boðað til fundar starfsfólks á morgun, þriðjudag. Haukur Leósson, stjórnarformaður Orkuveitunnar, sagði í samtali við Vísi að Guðmundur hefði verið fenginn til verksins vegna yfirburða þekkingar hans á orkumálum. "Ég hef verið að vinna að því undanfarið að fá Guðmund til að taka þetta verkefni að sér vegna yfirburða þekkingar hans á orkugeiranum. Ég treysti engum manni betur til að stýra Reykjavík Energy Invest á næstu mánuðum. Þeir skipta miklu máli því framundan eru verkefni í samstarfi við Enex í Kína og Kaliforníu. Það eru miklir peningar í spilinu því Orkuveitan hefur lagt til tvo milljarða í hlutafé. Guðmundur er rétti maðurinn til að sjá til þess að þessum peningum verði sem best varið," segir Haukur Leósson, stjórnarformaður Orkuveitunnar, í samtali við Vísi. Hjörleifur Kvaran, aðstoðarforstjóri Orkuveitunnar, mun gegna starfi forstjóra á meðan leyfi Guðmundar stendur yfir en Haukur ítrekar að öruggt sé að Guðmundur snúi til baka í forstjórastólinn. "Hans er þörf í þessu verkefni nú en auðvitað viljum við hafa hann sem forstjóra Orkuveitunnar til frambúðar," segir Haukur. „Reykjavik Energy Invest er dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur. Fyrirtækið var sett á fót í vor og er markmið félagsins að vera vaxtarbroddur íslenskrar orkuþekkingar á erlendri grund. Allar eigur Orkuveitunnar í verkefnum erlendis hafa verið færðar til hins nýja félags auk nýs hlutafjár. Fjöldi innlendra og erlendra fjárfesta hefur lýst áhuga á að koma að Reykjavik Energy Invest og verður það hlutverk Guðmundar að móta fyrirtækið og leiða útrás," að því er fram kemur í tilkynningu sem send var til starfsfólks Orkuveitunnar í dag.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Fleiri fréttir Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sjá meira