Innlent

Hlutum venjulegra tryggingataka komið til skila

Björn Gíslason skrifar
MYND/Stöð 2
Kröfulýsingarfrestur vegna krafna á hendur Samvinnutryggingum gt rennur út í dag en til stendur að leggja félagið niður og stofna hlutafélagið Gift og og sjálfseignarsjóð. Formaður skilanefndar félagsins segir að venjulegir tryggingatakar þurfi ekki að hafa áhyggjur af hlut sínum í félaginu, honum verði komið til skila.

Eins og fram kom í fréttum í byrjun sumars eiga tugir þúsunda hluta af um 50 milljarða króna eignum Samvinnutrygginga gt. Það eignuðust þeir með því að eiga í viðskiptum við félagið á tilteknu tímabili.

Sérstakri skilanefnd var falið að sjá um fjárhagslegt uppgjör Samvinnutrygginga. Eignir og skuldir félagsins verða fluttar í sérstakt hlutafélag, Gift ehf., og verða greiðslur til fólks í formi hlutabréfa í Gift. Rétt á greiðslum eiga þeir einstaklingar sem voru í viðskiptum við Samvinnutryggingar gt á árunum 1987 og 1988 og þeir sem voru með lögboðnar tryggingar húsa hjá Samvinnutryggingum á árunum 1992 og 1993. Eignir þeirra tryggingataka sem hafa látist eða orðið gjaldþrota í gegnum tíðina fara hins vegar í sérstakan sjálfseignarsjóð.

Yfir 50 þúsund eiga rétt á greiðslum

Að sögn Kristins Hallgrímssonar, formanns skilanefndar, er talið að yfir 50 þúsund aðilar eigi rétt á greiðslum frá Samvinnutryggingum, misháar eftir eðli viðskipta. Hann segir að hinn almenni iðngjaldagreiðandi frá áðurnefndum tímabilum þurfi ekki að hafa áhyggjur, greiðslum úr tryggingafélaginu verði komið til þeirra.

Kristinn segir að hugsanlega telji einhverjir að þeir eigi kröfu á hendur Samvinnutryggingum vegna skulda eða einhvers slíks og rennur frestur til kröfulýsingar á hendur Samvinnutryggingum út í dag. Aðspurður segir Kristinn að skilanefndinni hafi aðallega borist fyrirspurnir vegna hugsanlegra kröfulýsinga og segir hann að öllum þeim verði svarað. Hann bendir enn fremur á að ef í ljós komi síðar að fólk hafi ekki fengið það sem því beri þá skili sjálfseignarsjóðurinn því. Ekki verði því lokað á fólk frá og með deginum í dag.

Aðspurður segir Kristinn að skilanefndin komi líklega saman í lok mánaðar og fari yfir kröfulýsingar á hendur Samvinnutryggingum. Ef allt gangi að óskum muni þeir sem eigi rétt á greiðslum fá þær í október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×