Innlent

Besta ár í sögu minkaræktar

Geysihátt verð fæst fyrir minkaskinn og var síðasta ár það besta í sögu íslenskra loðdýrabænda, - það er að segja þeirra sem rækta mink, því aðeins einn bóndi er eftir í refarækt. Þar hefur afkoman verið mun lakari.

24 bændur eru nú eftir í loðdýrarækt, þar af 23 í mink en aðeins einn refabóndi þraukar enn. Loðdýrabúin eru einkum í þremur héruðum, á Suðurlandi, Mið-Norðurlandi og í Vopnafirði en þar býr formaður sambands loðdýrabænda, Björn Halldórsson. Hann lýsti stöðu greinarinnar í viðtali á Stöð 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×