Maraþonið gaf 41 milljón 23. ágúst 2007 19:57 Birna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Glitnis á Íslandi, afhenti fulltrúum félaganna fjármunina við athöfn í Háskólabíói. MYND/Halldór Kolbeins/Glitnir
Alls nutu um 130 líknar- og góðgerðarfélög góðs af sprikli landsmanna í dag, þegar Glitnir greiddi út áheitin í Reykjavíkurmaraþoninu 2007, alls 41,3 milljónir króna, við hátíðlega athöfn í Háskólabíói í dag. Hlauparar í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis gátu valið líknar- og góðgerðarfélag til að hlaupa fyrir og síðan áttu allir kost á að heita á þá upphæð að eigin vali til að hvetja hlauparana til dáða og láta jafnframt gott af sér leiða. Fjögur félög fengu yfir tvær milljónir króna hvert: Umhyggja, Krabbameinsfélag Íslands, Barnaspítali Hringsins og Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Fimm til viðbótar fengu á bilinu 1,1 til 1,6 milljónir króna hvert: Einstök börn, Göngum saman, MS félagið, ABC barnahjálp og MND félagið. Þá runnu skráningargjöld í Latabæjarhlaupinu - um 3,4 milljónir króna - óskipt til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Einar Benediktsson, stjórnarformaður UNICEF á Íslandi, veitti skráningargjöldunum, auk áheita upp á 635.000 krónur, viðtöku á samkomunni. Hann sagðist við tækifærið vera bæði snortinn og þakklátur aðstandendum Reykjavíkurmaraþonsins, en þó fyrst og fremst þátttakendum í Latabæjarhlaupinu, fyrir mikilvægan stuðning: „Kjarninn í Latabæjarhlaupinu í ár var að börn hjálpi börnum og er það gott hverri þjóð að börn læri að finna fyrir samkennd í garð þeirra sem minna mega sín. Þetta framlag yngstu hlauparanna mun breyta lífi og aðstæðum fjölda barna sem þjást og líða skort vegna fátæktar, sjúkdóma, stríðsátaka eða náttúruhamfara. Slíkur stuðningur er okkur mikilvægari en orð fá lýst." sagði Einar.
Mest lesið Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðarviðræður“ Innlent „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Innlent Fangavörður sendur í leyfi Innlent Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun Innlent Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skólakerfinu Innlent Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Erlent Þrjár stúlkur réðust á eina Innlent Rúta út af vegi í Fagradal og fleiri í vanda í hvassviðrinu Innlent Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Erlent Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Erlent Fleiri fréttir Þjónustubátur sökk í Tálknafjarðarhöfn Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Enn óvíst hvar miðja bakkans lendir Snjókomubakkinn nálgast borgina Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skólakerfinu Ellefu í framboði í prófkjöri Pírata Býður sig fram í embætti varaformanns VG Hálfs árs fangelsi fyrir að berja mann með bifhjólakeðju Rúmar sex hundruð milljónir til sjö stjórnmálaflokka Rúta út af vegi í Fagradal og fleiri í vanda í hvassviðrinu Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri Þrjár stúlkur réðust á eina Fangavörður sendur í leyfi Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðarviðræður“ Vantrauststillagan sýni vanhæfni meirihluta Vöku Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Ný bráðamóttaka að taka á sig mynd Miðflokki fatast flugið Vökuliðar frestuðu afgreiðslu á vantrauststillögu Samgöngustofa ógildir skoðanir á gúmmíbjörgunarbátum Tímamót og glæný könnun Vara við krefjandi aðstæðum á höfuðborgarsvæðinu „Dylgjur um menntastig“: Túlkun afbrotatölfræði innflytjenda þarfnist þekkingar Reykjadalur fær ekki styrki og fellir niður hluta starfsins Guðmundur Ingi í formlegar viðræður við Vor til vinstri Tekinn í tollinum með tíu kíló af ketamíni Reyna að hnýta lausa enda sem allra fyrst Endurnýjuðu gæsluvarðhald yfir grunuðum barnaníðingi Krafa að fá slökkvistöð í bæinn Sjá meira