Lögga borgar 200 þúsund króna sekt 23. ágúst 2007 16:25 Úr myndasafni. MYND/Hari
Dómsátt hefur verið gerð í máli varðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem ákærður var fyrir að hafa misnotað stöðu sína og látið aka sér í forgangsakstri út á Keflavíkurflugvöll. Maðurinn þarf að greiða 200 þúsund krónur í sekt fyrir athæfið. Atvikið átti sér stað í júní síðastliðnum og var maðurinn sakaður um að hafa nýtt sér mannafla lögreglu, bifreið og talstöðvar til þess að komast út á völl þar sem hann var að verða of seinn í flug til Kaupmannahafnar og tengiflugi til Litháen, en sú ferð var í einkaerindum. Upp komst um málið þegar akstur lögreglubílsins var kannaður en það er gert í gegnum sérstakt kerfi. Fari bílarnir upp fyrir vissan hraða þarf að gera grein fyrir því en í þessu tilviki fór lögreglubíllin sem ók honum langt yfir leyfilegan hámarkshraða.Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag og þá var gengið frá dómssátt og greiðir varðstjórinn 200 þúsund krónur í sekt fyrir athæfið. Varðstjóranum var vikið frá störfum á meðan málið var til meðferðar. Hann vildi ekki tjá sig um málið og sagðist myndu afgreiða málið innanhúss með sjálfum sér. Páll Winkel aðstoðarríkislögreglustjóri segir að niðurstaðan verði skoðuð og metið hvort manninum verði veitt lausn að fullu eða hvort hann geti fengið starfið að nýju. Páll vildi ekki tjá sig um niðurstöðuna að öðru leyti.
Mest lesið Konan sem ekið var á er látin Innlent Sæðisgjafamálið: „Við fjölskyldan vöknuðum upp við vondan draum“ Innlent Skora á Rúv að endurskoða þessa „misráðnu ákvörðun“ Innlent Opna fyrir umferð um „fyrstu hraðbraut á Íslandi“ Innlent Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Innlent Hellidemba í kortunum og líkur á þrumum Veður Leigubílstjóri og vinur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Björn Dagbjartsson er látinn Innlent Gerðu engin mistök með nafngreiningu vændiskaupanda Innlent Trampólín á flugi og vagn á hliðinni Innlent Fleiri fréttir Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Landhelgisgæslan eignast sjálfstýrða kafbáta „Mér persónulega fannst þetta gríðarlega gaman“ Hugrakkir drengir opnuðu sig í fréttum, breyttu kerfinu og skáluðu með Ingu Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Refsing milduð yfir burðardýri Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Þjófar sendir úr landi Fær bara hálft fæðingarorlof og veik leikskólabörn Björn Dagbjartsson er látinn Hvetja til bólusetningar vegna inflúensufaraldurs Slapp ekki með typpamynd til þrettán ára Halda starfsleyfinu þrátt fyrir kröfur íbúa Opna fyrir umferð um „fyrstu hraðbraut á Íslandi“ Vill skoða úrsögn úr EES Leigubílstjóri og vinur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Skaftárhlaup enn yfirstandandi Helgi Valberg tekur við ritarastöðunni Stór áfangi Borgarlínu afgreiddur í skipulagsráði og á leið í kynningu Rannsókn lokið þrjátíu árum eftir snjóflóðið Kópavogur svarar: Ljósmagnið á skiltinu minnkað og þverun væntanleg Lífsýni úr öðrum manni nýju sönnunargögnin Ljóst að einhverjir dragi lög sín til baka Konan sem ekið var á er látin Styrkirnir ekki auglýstir: Segir Miðflokkinn haldinn hysteríu og ótta við þjóðina Skora á Rúv að endurskoða þessa „misráðnu ákvörðun“ Trampólín á flugi og vagn á hliðinni Tekist á um fangelsismálin og Útvarpsstjóri ræðir framtíð Söngvakeppninnar Mál Brákarborgar hefur kostað borgina yfir þrjá milljarða Sjá meira