Þarf meira fjármagn til að takast á við hvítflibbaglæpi 14. júní 2007 12:02
Hvítflibbaglæpir verða algengari með auknu flæði fjármagns í alþjóðasamfélaginu. Arðbærasti glæpurinn í dag er sala á eftirlíkingum tískuvara sem færir mun meiri hagnað en fæst af flutningi og sölu fíkniefna. Mun meira fjármagn þarf til efnahagsrannsókna hér á landi til að takast á við glæpi af þessu tagi. Samtök atvinnulífsins og saksóknari efnahagsbrota stóðu fyrir morgunverðarfundi á Grand hótel í morgun. Þar voru ræddir svokallaðir hvítflibbaglæpir og viðbrögð við þeim. Sarah Jane Hughes, prófessor í lögum við Indiana-háskóla í Bandaríkjunum, segir alþjóðavæðinguna og aukið peningaflæði milli landa eiga stóran þátt í aukinni tíðni glæpa á þessu sviði. Hagnaður af sölu eftirlíkinga af lúxusvörum er arðbærastur en peningaþvottur er vaxandi vandamál á alþjóðavísu með auknu fjármagni. Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota, segir upphæðir í slíkum málum hér á landi hafa aukist gífurlega á síðustu misserum. Hann telur íslenska bankakerfið veikt fyrir peningaþvætti. Hann segir embættið varla geta sinnt þeim málum sem fyrir liggi en refsivörslukerfið verði að virka svo einhver varnaðaráhrif séu í þeim þannig. Þá vill Helgi fleiri starfsmenn í embættið og aukna heimild til lögreglusátta í málum af þessu tagi. Í Noregi sé þessari aðferð beitt með góðum árangri og spari hún bæði tíma og fjármagn. Garðar G. Gíslason hæstaréttarlögmaður segir að tafir á meðferð mála af þessu tagi séu óviðunandi. Hann kennir um óskilvirku kerfi, mannfæð og of mörgum stofnunum sem komi að málunum.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Fleiri fréttir Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Sjá meira