Hringur fékk sparibauk 19. janúar 2007 10:20 Pétur Þorsteinn Óskarsson frá Glitni, Hringur, Anna Marta Ásgeirsdóttir, Ásgeir Haraldsson prófessor í Barnalækningum og sviðsstjóri Barnalækninga á Barnaspítala Hringsins, og Vilhjálmur Halldórsson frá Glitni.
Ísbjörninn á barnaspítala Hringsins fékk skemmtilega heimsókn: Hringur fékk sparibauk frá Glitni með 593 þúsund krónum. Fyrir jólin tilkynnti Glitnir að bankinn hefði ákveðið að styrkja ísbjörninn Hring, hinn káta og loðna vin barnanna á Barnaspítala Hringsins, um tæplega 600 þúsund krónur. Þá var einnig stofnaður sérstakur söfnunarreikningur þar sem almenningi gafst tækifæri til að styrkja Hring. Í dag fékk Hringur afhentan sparibauk með afrakstrinum, alls 593 þúsund krónum. Ísbjörninn Hringur er hugarsmíð hjónanna Önnu Mörtu Ásgeirsdóttur og Ingólfs Arnar Guðmundssonar en þau fengu góða aðstoð frá Jóni Hámundi teiknara og Guðmundi Þór Kárasyni hönnuði við útfærslu og smíð bjarnarins. Þá aðstoðaði Björgvin Franz Gíslason leikari við að móta persónu Hrings. Pétur Þorsteinn Óskarsson, talsmaður Glitnis, afhenti Hringi sparibaukinn á leikstofunni á Barnaspítala Hringsins í dag. Hann sagði það sérstakt ánægjuefni fyrir Glitni að styðja við bakið á verkefninu. „Það er til eftirbreytni þegar einstaklingar taka sig til og ákveða að láta gott af sér leiða með þessum hætti. Starfsemin hér á barnaspítalanum hefur fyrir löngu vakið þjóðarathygli og þeir sem hingað hafa komið með börn vita að það ríkir hér alveg sérstakur andi. Við hjá Glitni erum stolt af að fá að koma að þessu verkefni og vonum að Hringur verði ungu hetjunum sem hér dvelja góður stuðningur."
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Fleiri fréttir Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Sjá meira