Innlent

SGS kynnir markmið sín í komandi samningum

Forsvarsmenn Starfsgreinasambandsins kynntu Samtökum atvinnulífsins markmið sín í komandi kjarasamingum. Kaupmáttaraukning og efnahagslegur stöðugleiki, - hækkun lægstu launa og launaþróunartrygging ber hæst í markmiðum SGS.

„Stórbæta verður kjör þeirra sem lægst hafa launin og að kaupmáttur þeirra, sem setið hafa eftir í launaþróuninni, hækki umtalsvert meira en annarra," segir í frétt á heimasíðu SGS. „Samið verði um að taxtar verði færðir nær greiddu kaupi og öryggisnetið þar með gert tryggara. Starfsgreinasambandið vill að samið verði til tveggja ára um almennar launahækkanir sem tryggi verkafólki kaupmáttaraukningu á samningstímabilinu."

Þá segir að bæta þurfi veikinda-, slysa- og örorkuréttindi og vísað er til „ályktunar þings Starfsgreinasambandsinsí því sambandi, sem fagnaði hugmyndum um ,,nýtt kerfi veikinda-, slysa- og örorkuréttinda á almennum markaði" sem jákvæðu og mikilvægu framlagi til jöfnunar á veikindarétti félagsmanna aðildarfélaga sambandsins og einu mikilvægasta framfaraspori í þessum efnum um langt skeið. Jöfnun lífeyrisréttinda og aukin tryggingavernd hafa um árabil verið og eru enn markmið á vettvangi kjaramála sambandsins."

Önnur markið SGS eru „aukin framlög atvinnurekenda í fræðslusjóði, aukin vernd launafólks við uppsagnir og að kynbundnum launamun verði eytt. "




Fleiri fréttir

Sjá meira


×