Vill auðvelda fólki að hætta að reykja Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. október 2007 10:30 Katrín Júlíusdóttir er fyrsti flutningsmaður.
Sjö þingmenn úr Sjálfstæðisflokki og Samfylkingunni hafa lagt fram frumvarp sem felur í sér að þeir sem selja tóbak í smásölu fái heimild til sölu nikótínlyfja sem ekki eru lyfseðilsskyld. Það er Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sem er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. Í greinagerð með frumvarpinu kemur fram að markmiðið með því sé að fjölga sölustöðum nikótínlyfja þannig að þau verði valkostur í stað tóbaks þar sem það er selt. Nikótínlyf sem seld eru í lausasölu eru í formi tyggigúmmís, plásturs, innsogs- og nefúðalyfs. Með frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir að nikótíntöflur sem einungis fást gegn framvísun lyfseðils og verði seld annarsstaðar en í apótekum. Í samtali við Vísi sagði Katrín að sér þætti mjög einkennilegt að heimilt væri að selja tóbak og tjöru í verslunum en ekki mætti selja nikotínlyfin við hliðina á þeim. „Þeir sem vilja hætta að reykja verða að hafa lyfin við hliðina á tóbakinu í búðinni," segir Katrín. Hún leggur mikla áherslu á að sala lyfjanna muni lúta sömu reglum og sala tóbaks samkvæmt frumvarpinu. Katrín segir að þeir sem starfi að forvarnarmálum, svo sem læknar, telji þetta frumvarp jákvætt Þetta er í þriðja skipti sem Katrín leggur frumvarpið fram en það fékk ekki efnislega afgreiðslu í fyrri skiptin. Katrín telur að líkurnar á því að málið verði afgreitt nú séu góðar. „Ég treysti því að heilbrigðisnefnd muni fara vel yfir þetta mál og það muni skila sér þaðan," segir Katrín. Hún bendir á sex aðrir þingmenn úr báðum þingflokkum flytji málið með sér og vonast til að það auki líkurnar á því að málið verði afgreitt.
Mest lesið Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Erlent Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Erlent Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Erlent Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Erlent „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Innlent Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann Innlent Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Erlent Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Innlent Fleiri fréttir „Maður skilur ekki alveg hvernig á þessu stendur“ Mörg þúsund nýta enn 2G og 3G-kerfin sem loka um áramótin Spá því að vextir muni ekki lækka frekar á árinu Kynferðisbrot gegn barni til rannsóknar, leiðtogafundur og eldislax Netlaust í Ráðhúsinu vegna öryggisráðstafana Bíða þess enn að ráðherra svari neyðarkalli um mönnun Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Stefán Kristjánsson er látinn Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Spá eldingum á Vesturlandi Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann „Hamfarir og ekkert annað“ 30 ára afmæli Blómstrandi daga í Hveragerði „Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Hundrað eldislaxar í Haukadalsá, ásakanir um samráð og blómlegt í Hveragerði Saka Storytel um að forgangsraða eigin efni á kostnað annarra Ekki tilkynnt um stórt gat á sjókví í nokkurn tíma þrátt fyrir eftirlit Taldi hundrað eldislaxa í neðri hluta Haukadalsár Tónlistarmaður taldi handtökuna ólögmæta en fór tómhentur heim Krefjast þess að ráðherra dragi ummæli sín til baka Samkeppniseftirlitið rannsakar Storytel Fá tímabundna undanþágu frá viðskiptaþvingunum Í samtali við norsku kafarana hvort þeir komi aftur Segir tugi þúsunda sendingarkostnað vera dulinn landsbyggðarskatt Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Eldislaxar í Haukadalsá, Gnoðarvogur og samgöngur á Vesturlandi Segir dæmi um að fjölskyldur hafi lokað á fólk vegna BDSM Snýr aftur sem bæjarstjóri eftir árslangt veikindaleyfi Nýir ofnar skemmast vegna súrefnis í heita vatninu Sjá meira
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði