Björgólfur ríkari en Trump og Spielberg 10. mars 2007 12:00 Hækkar um 100 sæti Björgólfur Thor telst nú meðal 250 ríkustu manna heims samkvæmt lista Forbes.
Íslenski kaupsýslumaðurinn Björg-ólfur Thor Björgólfsson hækkar sig um 101 sæti og kemst í 249. sæti yfir ríkustu menn heims á lista tímaritsins Forbes. Eignir Björgólfs Thors eru metnar á 3,5 milljarða bandaríkjadala, eða um 235 milljarða króna. Í fyrra voru eignir Björgólfs metnar á 2,2 milljarða dala og þá sat hann í 350. sæti yfir auðugustu menn veraldar. Björgólfur er nú orðinn ríkari en margir heimsþekktir einstaklingar úr viðskiptalífinu og skemmtanaiðnaðinum. Þannig er kvikmyndaleikstjórinn Steven Spielberg í sæti 287, metinn á þrjá milljarða dala, og fasteignamógúllinn og sjónvarpsstjarnan Donald Trump enn neðar, í sæti 314. Í sæti númer 488 eru svo Malcolm Glazer og synir hans sem keyptu Manchester United fyrir háa upphæð fyrir skemmstu. Þeir eru varla hálfdrættingar á við Björgólf. Sjónvarpskonan Oprah Winfrey er metin á 1,5 milljarða dala í sæti 664 og Björgólfur Guðmundsson kemst í fyrsta sinn á listann, situr í sæti 799 metinn á 1,2 milljarða dala. Þótt Björgólfur hafi hækkað talsvert á listanum á hann enn eftir að taka fram úr ófáum stórlöxunum á leið sinni á toppinn. Fyrir ofan Björgólf má finna George Lucas og Bernie Ecclestone (243. sæti), Giorgio Armani (177), Ralph Lauren (158), Steve Jobs (132), Rubert Murdoch (73), Silvio Berlusconi og fjölskyldu (51) og Roman Abramovich, eiganda Chelsea (16). Ríkasti maður heims samkvæmt Forbes er sem fyrr Bill Gates. Eiginir hans eru metnar á 56 milljarða Bandaríkjadala.
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Fleiri fréttir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Sjá meira