Vill að Landsvirkjun endurskoði áform um virkjanir í Þjórsá 13. nóvember 2007 14:47 MYND/Pjetur
Björgvin G. Sigurðsson vill að Landsvirkjun endurskoði áform sín um virkjanir í neðri hluta Þjórsár í kjölfar þess að fyrirtækið ákvað að selja ekki orku til álvera á suðvesturhorninu á næstunni. Haft er eftir viðskiptaráðherra á vef Samfylkingarinnar að hann telji að hinar nýju tillögur eigi að vera í sátt við fólkið á Þjórsárbökkum en töluverð andstaða hefur verið við virkjanirnar þrjár, Hvammsvirkjun, Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun meðal þeirra. Björgvin minnir á að fyrir nokkrum árum hafi Landsvirkjunarmenn talað fyrir miklu umfangsminni rennslisvirkjunum á þessum stöðum í ánni. Orkan sem Landsvirkjun ætlaði að fá í Neðri-Þjórsá sé enn óseld og ljóst sé að netþjónabú og kísilvinnslustöðvar þurfi hvert um sig miklu minni orku en álver þótt þau borgi betur. Því geti Landsvirkjun náð sáttum við íbúa á Þjórsárbökkum og við náttúruverndarfólk í landinu með því að koma fram með nýjar tillögur um orkuöflun í Neðri-Þjórsá. „Ég er þó alveg viss um að ef þær líktust upphaflegum áformum um rennslisvirkjanir í ánni neðanverðri yrðu heimamenn reiðubúnir að ræða málin til hlítar," segir Björgvin. „Ég teldi það ábyrgðarleysi af Landsvirkjun, þessu stóra orkufyrirtæki í 100% ríkiseigu, að nota ekki þau tækifæri sem nú bjóðast til sátta í málinu með nýjum tillögum í þessa veru. Ef þeir hjá Landsvirkjun ætla að halda áfram einsog ekkert hafi í skorist - ja, þá eru hugmyndir þeirra um virkjun Neðri-Þjórsár jafnvondar og áður, hvað sem líður yfirlýsingum fyrirtækisins um kaupendur orkunnar," segir hann enn fremur á vef Samfylkingarinnar. Hann kallar eftir ábyrgum viðbrögðum Landsvirkjunar í stað útúrsnúninga.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira