Innlent

Ökumenn hugi að ljósabúnaði í skammdeginu

MYND/Hari

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur ökumenn til að huga að ljósabúnaði bíla sinna, ekki síst nú þegar skammdegið skellur á.

Nærri þrjátíu ökumenn voru stöðvaðir í Reykjavík í gærkvöld vegna þess að ljósabúnaði bíla þeirra var áfátt. Ýmist vantaði ljós að framan eða aftan en ökumönnunum var góðfúslega bent á að skipta um perur, öryggi eða annað það sem bilað var. Segir lögregla að ætla megi að ástandið sé svipað annars staðar á höfuðborgarsvæðinu en mikilvægt sé að hafa þessa hluti í lagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×