Veikt barn týnt í kerfinu 13. nóvember 2007 11:35
Ásthildur Björt Pedersen er nýflutt heim frá Frakklandi ásamt tæplega ársgamalli dóttur sinni. Þær mæðgur flúðu heimilisföðurinn sem beitti Ásthildi andlegu og líkamlegu ofbeldi. Skömmu eftir heimkomuna veiktist dóttir Ásthildar hastarlega en sökum þess hve skammur tími er liðinn frá því þær fluttu heim njóta þær ekki fullra réttinda í heilbrigðiskerfinu og hafa þær þurft að borga tugi þúsunda króna fyrir læknisaðstoð og sýklalyf. Ásthildur segir að þeim mæðgum hafi meðal annars verið vísað frá á heilsugæslustöð og þeim sagt að bíða fram á kvöld eftir því að læknavaktin opnaði. Þá var dóttirin með fjörutíu stiga hita og alvarlega sýkingu. „Ég hef aldrei breytt um lögheimili og alla tíð verið íslenskur ríkisborgari. Mér er hins vegar sagt að ég verði að vera hér í sex mánuði áður en ég kemst inn í íslenska tryggingakerfið,"segir Ásthildur. Hún telur þetta fyrirkomulag vera út í hött því dóttir sín geti ekki að því gert þótt hún veikist innan þess tíma. Hún segist þegar hafa greitt tugi þúsunda króna í læknisaðstoð fyrir utan að skulda Tryggingastofnun þrjátíu þúsund krónur. Tryggingastofnun segir að Ásthildur eigi að taka málið upp við frönsk yfirvöld en þar finnist hún ekki á skrá. Hún þarf að skila inn launaseðlum til þess að staðfesta að hún hafi búið í landinu. Þeim getur hún hins vegar ekki skilað inn vegna þess að eiginmaðurinn fyrrverandi er búinn að eyðileggja þá. „Mér finnst þetta ótrúlegt kerfi sem getur ekki séð um að hjúkra veiku barni vegna einhvers formsatriðis," segir Ásthildur. Hún segist hafa rætt málið við Tryggingastofnun og heilbrigðisráðuneytið en alls staðar komi hún að lokuðum dyrum.
Mest lesið Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Innlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Erlent Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Innlent Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Innlent „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Innlent Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Erlent Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Innlent Fleiri fréttir Hryðjuverkaárás í Ástralíu og ástand í heilbrigðiskerfinu Sanna segir frá nýju framboði Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Vara fólk við póstum og skilaboðum frá Grundarheimilunum Vara við póstum frá Grund og „jafnréttisþreyta“ Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Fjárlög, skattar og skipti á dánarbúum á laugardagsþingi Þau fái heiðurslaun listamanna Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn Sjá meira