Ekki hægt að neyða þjónustu á fólk 15. júní 2007 12:15
Öldruðu hjónunum sem flutt voru á Landspítala eftir að nágrannar höfðu fundið megna ólykt frá íbúð þeirra heilsast vel. Verið er að hreinsa íbúð þeirra svo þau geti snúið aftur til síns heima. Konan var með sár á fæti sem var alsett lirfum. Ekki hægt að neyða fólk til að þiggja þjónustu frá velferðarsviði segir Ellý Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri. Hjónin voru lögð inn á öldrunardeild Landspítalans á þriðjudag. Eins og við sögðum frá í fréttum okkar í gærkvöldi voru þau flutt þangað eftir að nágrannar kölluðu eftir aðstoð þar sem megna lykt lagði frá íbúðinni. Konan hefur verið rúmliggjandi árum saman en eiginmaður hennar hefur hugsað um hana. Þegar hann síðan veiktist sjálfur gátu þau enga björg sér veitt. Verið er að þrífa íbúðina og mála hana en aðkoman var skelfileg og hafði fólkið til að mynda ekki komist á salerni til að gera þarfir sínar. Þá var konan með sár á fótum sem bundið hafði verið um og þegar sárabindin voru fjarlægð kom í ljós að undir þeim grasseruðu flugnalirfur. Samkvæmt heimildum fréttastofu var það þó lán í óláni því þessar lirfur átu dautt skinn og héldu sárinu hreinu. Ellý Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, sagði í samtali við fréttastofu nú rétt fyrir fréttir að ekki sé hægt að neyða þjónustu upp á fólk en hjónin höfðu verið treg til að þiggja aðstoð frá borginni. Hún sagði að til þess þurfi að liggja fyrir læknisfræðilegt mat á því að fólk sé hættulegt sér og öðrum og þá er hægt að fara fram á að það sé svipt sjálfræði. Aðspurð hvort fylgst væri með öldruðum í borginni sagði Ellý að til standi að setja á fót reglulegar heimsóknir til aldraðra. Nýlega hafi farið af stað tilraunaverkefni í Laugardals- og Háaleitishverfi þar sem aldraðir væru heimsóttir reglulega og ef það verkefni gefur góða raun stendur til að víkka það út.
Mest lesið Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Innlent Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Erlent Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Innlent Vara við eldislax í Haukadalsá Fréttir „Hefði ég ekki verið kominn af stað væri ég ekki að tala við þig núna“ Innlent Ámálaða merkið þótti ekki nógu flott Innlent „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent Vísað úr landi eftir ólöglega dvöl: Togaði í hár konunnar, sparkaði í hana og mölvaði síma hennar Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Líkamsræktarstöðin í Laugum rýmd: Reykurinn reyndist vera gufa Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Líkamsræktarstöð World Class í Laugum rýmd vegna vatnsleka Skuggahliðar þyngdarstjórnunarlyfja og útskúfun vegna BDSM Ámálaða merkið þótti ekki nógu flott Slasaður eftir að tveir bílar skullu saman á hættulegum gatnamótum við Skógafoss Vísað úr landi eftir ólöglega dvöl: Togaði í hár konunnar, sparkaði í hana og mölvaði síma hennar Guðbjörg ráðin skólastjóri í tólfta grunnskóla Hafnarfjarðar Skyldleiki við lögregluþjón þvældist fyrir Stærðar borgarísjaki sást vestur af Látrabjargi „Hefði ég ekki verið kominn af stað væri ég ekki að tala við þig núna“ Kærumál seinkar verklokum við brúagerð í Gufudalssveit Bjóða þeim sem skera niður regnbogafána í heimsókn Valdar strætóleiðir ganga oftar og lengur Hafi ekki forsendur til að efast um ákvörðun Sjúkratrygginga Rannsókn á „bíræfnum“ þjófnaði á viðkvæmu stigi Niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu verði tryggð Niðurgreidd sálfræðiþjónusta, tollar á lyf og hitamet Óprúttnir aðilar hóta rofinni rafmagnstengingu berist greiðsla ekki strax „Ég hef engar vísbendingar fengið um að þetta sé að gerast“ Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Ástandið á Gasa: 42 prósent telja að Íslendingar ættu að beita sér meira „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Teiknaði hakakross á hurðina hjá nágrannanum Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Sjá meira
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent
Vísað úr landi eftir ólöglega dvöl: Togaði í hár konunnar, sparkaði í hana og mölvaði síma hennar Innlent
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent
Vísað úr landi eftir ólöglega dvöl: Togaði í hár konunnar, sparkaði í hana og mölvaði síma hennar Innlent