Gerir lífið skemmtilegra með Veiðimanninum 5. febrúar 2007 08:45 Bjarni Brynjólfsson. Er aftur sestur í ritstjórastólinn og það hjá veiðitímaritinu Veiðimaðurinn.
Bjarni Brynjólfsson er aftur sestur í ritstjórastólinn, að þessu sinni hjá veiðitímaritinu Veiðimanninum en blaðið kemur út þrisvar á ári. „Þetta er bara hlutastarf,“ segir Bjarni sem tekur við keflinu af Eggert Skúlasyni en hann hætti ritstjórn blaðsins fyrir skömmu. Bjarni segist ekki hræðast þennan sívaxandi hóp sem veiðmenn eru þótt þeir séu þekktir fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum þegar kemur að áhugamálinu. „Þeir eru skapheitir og eins misjafnir og þeir eru margir,“ segir Bjarni sem sökum reynslu sinnar á Séð og heyrt sagðist ætla að gera veiðilífið skemmtilegra og blaðið líka. „Ég mun leita í gamlar hefðir og nýjar,“ segir Bjarni. Og nóg liggur veiðimönnum á hjarta; hvers kyns friðanir og veiðiaðferðin „veiða og slepp“ sem síðasti ritstjóri var alfarið á móti. „Ég held að hann hafi fyrst og fremst verið hræddur um að það væri ekki hægt að veiða í framtíðinni ef náttúruverndarsinnarnir næðu undirtökunum,“ útskýrir Bjarni og segir þar gæta ákveðins miskilnings. „Veiðimenn sem veiða hvað mest á stöng hafa innleitt þessa aðferð einfaldlega vegna þess að þeim finnst leiðinlegt að horfa á eftir aflanum í ruslið,“ segir Bjarni og bætir því við að aukin ásókn í bestu veiðisvæðin hafi gert það að verkum að hugsa þurfi betur um laxastofninn. „Ég er hins vegar enginn talsmaður þess að veiða og sleppa en vill brýna fyrir mönnum að þeir gangi vel um náttúruauðlindir landsins.“ Bjarni hefur verið starfandi hjá breska sendiráðinu og reiknar með að verða þar til vors en þá taki veiðimennskan við. „Ég fékk þessa flugu fyrst í höfuðið á Norðurtangabryggju á Ísafirði þar sem hinn eðlabráð var marhnútur í sparifötum.“
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Fleiri fréttir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Sjá meira