Ómar gleymdi engum koltvísýringi 4. febrúar 2007 14:00 Ómar ragnarsson. Maður sem hefur átt minnstu bíla landsins í 48 ár hefur ekki gleymt koltvísýringnum. Það er á hreinu. “
Það sem ég hafði um mengunina að segja var klippt út úr Kastljósinu,” segir Ómar Ragnarsson hugsjónamaður með meiru. Fréttablaðið greindi nýverið frá því að verulega umdeildar eru hugmyndir Ómars, sem hann boðaði í Kastljósinu í vikunni, um endurreisn rúntsins gamla sem ganga út á að gera umferð sem kennd er við rúntinn, niður Laugaveg og um Austurstræti, að tvístefnu. Kolbrún Halldórsdóttir alþingismaður sagði af þessu tilefni í samtali við Fréttablaðið: „Allir þekkja þær ógnir sem að umhverfinu stjeða með losun gróðurhúsaloftegunda. Uppsprettan eru samgöngur lesist bílar,” sagði Kolbrún af þessu tilefni. Ýmsir tekið undir með henni en Ómar segir þetta mikinn misskiling og meinlegan. Þó Ómar saki ekki Kastljósið um eitt né neitt, stundum þurfi að klippa og skera, þá byggir umræðan á því sem ekki kom fram. Hvernig á fólk að vita að hann sé búinn að brjóta þessi mál til mergjar? Hugmyndir Ómars ganga út á að minnka bílaflota landsmanna til mikilla muna. kolbrún halldórsdóttir Hefur, ásamt fleirum, gagnrýnt hugmyndir Ómars um endurreisn rúntsins svonefnda -- Ómarsrúntsins. „Maður sem hefur átt minnstu bíla landsins í 48 ár hefur ekki gleymt koltvísýringnum. Viðbót við umferð í kvosinni hjá örlitlu broti íbúanna, brot úr degi, er svo lítið miðað við hversdagsumferðina á götum borgarinnar að það er smjörklípa í samanburði við kjötfjall. Smjörklípuaðferðin reynist stundum vel í rökræðum eins og þekkt er,” segir Ómar. Og Ómar heldur áfram. Segist kominn miklu miklu lengra í hugmyndum sínum en Kolbrún heldur í róttækum hugmyndum um að minnka bílaflotann með því sem hann kallar lengdargjaldi. „Þá borga menn ákveðið gjald fyrir hvern sentimeter sem bíllinn er lengri en nemur 2,50 metrum. Hundrað þúsund bílar fara um Miklubrautina eina á hverjum degi. Ef bara helmingurinn af þeim yrði styttur niður í tvo og fimmtíu – væru smartbílar – þá myndu losna hundrað kílómetrar af malbiki á þessari einu götu á hverjum degi sem annars væru þaktir bílum.” Ómar vill koma svonefndum smart-bílum í umferð. „Tveir smartbílar komast þversum í stæði þar sem einn bíll er núna. Ég get teiknað þetta á servíettu fyrir Kolbrúnu Halldórsdóttur,” segir Ómar og nefnir að hann sé búinn að ígrunda þessi mál í áratugi. Hann vill að menn borgi fyrir malbikið sem þeir nota. Láta markaðinn sjá um þetta. „Þetta er ekki sósíalismi. Og í fjölskyldubílinn hinn stærri á fólk að geta fengið í vegalengdamæli eins og var í díeselbílunum og fær þá afslátt á lengdargjaldinu í hlutfalli við ekna kílómetra.”
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Fleiri fréttir Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Sjá meira