Með fíkjur í fyrirrúmi 25. janúar 2007 06:45 Rúnar Gíslason borðar fíkjur eins og epli og lumar á ýmsum góðum ráðum. MYND/Stefán
Fíkjur geta verið ráðgátur fyrir leikmenn. Rúnar Gíslason hjá Kokkunum veisluþjónustu þekkir þó leyndardóminn og gaf Fréttablaðinu góð ráð um notkun ávaxtanna. „Fíkjur eru í raun og veru ekki líkar neinum öðrum ávöxtum,“ segir Rúnar, sem borðar þær eins og epli. „Það þarf ekkert að fletta hýðinu af, bara bíta í.“ Rúnar segir fíkjur vera afar vinsælan fylgifisk villibráðar. „Þá gerir maður oft marmelaði eða sultu úr þeim. Fíkjurnar eru skornar í grófa teninga, settar í pott með sykri og kannski einum dropa af ediki. Svo er þetta soðið niður, bara ekki of lengi,“ segir hann. Einnig má búa til afspyrnugóða eftirrétti úr ávöxtunum. „Það er hrikalega gott að gera karamellu á pönnu, skera fíkjurnar í báta, skella út í og bera fram með ís,“ segir Rúnar. „Svo má líka baka þær. Þá sker maður smá stykki ofan af, gerir kross í með hnífnum og þrýstir kjötinu aðeins upp, eins og maður gerir með bakaða kartöflu. Svo er brúnum hrásykri stráð í sárið og fíkjurnar bakaðar í ofni.“ Fíkjur geta þó verið mjög misjafnlega þroskaðar, að sögn Rúnars. „Sumar eru grænleitar, en þær eru bestar svona bláleitar að utan,” segir Rúnar.
Mest lesið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið „Sat í átta klukkutíma á dag og horfði út um gluggann“ Menning Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru Menning Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2025 Bíó og sjónvarp Frægir fundu ástina 2025 Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Menning Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Lífið Fleiri fréttir Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni „Við erum öll dauð hvort sem er“ Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sjá meira