Styttist í Tvíæringinn í Feneyjum 25. janúar 2007 05:30
Það styttist í Tvíæringinn í Feneyjum: Steingrímur Eyfjörð Kristmundsson myndlistarmaður var valinn af fagnefnd sem menntamálaráðherra skipaði til að vera fulltrúi Íslands á þessari stærstu og virtustu myndlistarmessu Evrópu. Í vikunni var tilkynnt að Landsvirkjun kæmi honum til stuðnings. Forstöðumaður Kynningarmiðstöðvar myndlistar, dr. Christian Shoen, er „commissioner" verkefnisins en Hanna Styrmisdóttir er sýningarstjóri og heldur um alla þræði. Sagði hún í samtali við Fréttablaðið að fjármögnun verksins gengi vel og stefnt væri á að ljúka henni í mars. Steingrímur hefur þegar lagt verkið niður og er vinnsla þess langt komin. Verður það kynnt í smáu sem stóru við sama tækifæri. Nú er lokið langri dvöl íslenskra myndlistarmanna í finnska skálanum á sýningarsvæðinu. Shoen fór suður eftir og fann nýtilega jarðhæð í palazzo við Grand Canale, um 180 fermetra, og er hún leigð undir sýninguna. Þar er aðgengi gott, bæði frá götu og síkinu. Fer sendinefnd til Feneyja 20. maí en kynningardagar eru 7.-9. júní og hin formlega opnun hinn 10. júní. Tvíæringurinn stendur svo fram á haust. Steingrímur sagði í samtali við Fréttablaðið að verkefnið væri býsna stórt og kostnaðarsamt. Þó að ákvörðun hafi verið tekin um þátttöku hans í vor hafi ekki byrjað vinna af alvöru við útfærslu fyrr en í haust. Framlag Landsvirkjunar væri mikilvægt.
Mest lesið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Menning Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Fleiri fréttir Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Sjá meira