Denni tekur við Íslandi í dag 24. janúar 2007 06:00 Steingrímur Sævarr. Nýr stjórnandi Íslands í dag stefnir að þætti þar sem finna má allt það sem fólkið í landinu er að ræða hverju sinni. „
Ég get að svo stöddu ekki gefið upp hvernig hópurinn verður saman settur. Verið er að binda endahnút á það. Ég býst við að það verði klárt á morgun og í kjölfarið verður það gefið upp," segir Steingrímur Sævarr Ólafsson aðspurður hvernig hópurinn sá sem muni starfa við sjónvarpsþáttinn Ísland í dag verði samansettur. Frá því hefur verið gengið að Steingrímur, eða Denni eins og hann er jafnan kallaður, taki við stjórn Íslands í dag. Þorsteinn J. Vilhjálmsson hefur til skamms tíma ritstýrt þættinum en að undanförnu hafa þar birst á skjánum auk hans Svanhildur Hólm, Þóra Arnórsdóttir og Sölvi Tryggvason. Ómögulegt var með öllu að fá það upp úr Steingrími, í ljósi ofansagðs, hvort miklar eða einhverjar breytingar eru fyrirhugaðar á mannahaldi. „En hópurinn verður stærri en var, Fimm manna ritstjórn. Verið er að stækka og bæta þáttinn," segir Steingrímur. Útsendingatími verður enn um sinn sá sami eða frá 18.18 til 19.30. En jafnvel er stefnt að því að lengja þáttinn og ljóst má vera að mikill hugur er í nýjum ritstjóra. „Stefnan er einföld. Fólk á ekki að þurfa að horfa á Kastljósið. Það sem er að gerast, það sem hefur verið að gerast og það sem mun gerast verður í Íslandi í dag. Sem gerir það að verkum að þú þarft ekki að leita annað til að fá upplýsingar um þjóðmál, menningu, stjórnmál og dægurmál ... eða hvað eina sem fólkið í landinu er að tala um." Breytingar eru í deiglunni í sjónvarpsmálum 365 og verður Ísland í bítið lagt niður í þeim hræringum. Ísland í dag verður gert að sjálfstæðri rekstrareiningu innan 365 en mun þó eftir sem áður starfa í nánu samstarfi við Fréttastofu Stöðvar 2. Ýmsar breytingar eru í deiglunni í sjónvarpsmálum 365. Sjónvarpsþáttur Heimis Karlssonar og Sirríar, Íslandi í bítið, verður lagt af með það meðal annars fyrir augum að bjóða upp á betra útvarpsefni á Bylgjunni sem hefur útvarpað „Bítinu". Oft hentar það sem í sjónvarpi er ekki útvarpi. Sirrý sagðist aðspurð ekki vera í aðstöðu til að tjá sig nánar um þessar fregnir þegar Fréttablaðið leitaði eftir því en sagðist ekki á förum frá fyrirtækinu. Til stendur að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið og hefja framleiðslu þátta hennar Örlagadagur. Hins vegar er að því stefnt að Heimir setjist við míkrófóninn á Bylgjunni. Árið 2000 hætti Steingrímur á fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar þar sem hann hafði þá verið í ellefu ár. Hann hefur að undanförnu vakið mikla athygli sem mikilvirkur bloggari en var þar áður upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins. Hann segist líta svo á að verið sé að færa áhersluna til. „Fyrir örfáum árum var aðeins Ísland í dag. Þá var Ísland í bítið bætt við. Fyrir skemmstu var tekinn upp viðamikill hádegisfréttaþáttur. Nú verður Ísland í dag eflt. Færa áhersluna til eftir því hvar markaðurinn er réttur hverju sinni. Hann er núna réttur þarna: Í hádeginu og á kvöldin. Sjónvarp er fyrir þá sem vilja horfa. Þeir vilja horfa á þessum tíma og við þeirri kröfu verður orðið."
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Fleiri fréttir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Sjá meira