Audda og Huga úthýst úr þýskri handboltahöll 23. janúar 2007 10:00 Adolf Ingi segir Audda og Huga hafa brotið allar hugsanlegar reglur um framgöngu fjölmiðlamanna á HM. „
Þetta er ekki héraðsmót heldur heimsmeistarakeppnin í handbolta í Þýskalandi,“ segir Adolf Ingi Erlingsson, íþróttafréttamaður Ríkissjónvarpsins, þegar hann lýsir framgöngu Huga og Audda sem hneykslanlegri. Þeir Hugi Halldórsson og Auðunn Blöndal segja hins vegar farir sínar ekki sléttar á HM í Þýskalandi og saka íþróttafréttamanninn Adolf Inga Erlingsson um að hafa gengið erinda þýskrar yfirstjórnar í að meina þeim að taka upp efni fyrir stuðningmannaklúbbinn Í blíðu og stríðu. Hugi gengur svo langt að segja framgöngu Adolfs hreinlega hafa orðið til þess að þeir hafi ekki getað sinnt sínu starfi, þeim hafi verið úthýst og ekki náð að taka upp neitt efni á vef stuðningsmanna eftir leik Íslands og Úkraínu. Hugi segist hafa vitað að þeir gætu ekki farið inn með myndavél á leik Íslands og Ástralíu þar sem þeir voru ekki með þar til gerða passa. „Við fengum Adolf því til að smygla henni inn,“ segir Hugi. Þegar leikurinn við Ástralíu á laugardeginum kláraðist náði Hugi í vélina og þeir hófust handa við að taka upp. „Þegar Adolf sá hvað var á seyði kom hann og húðskammaði okkur,“ segir Hugi og heldur því fram að Adolf hafi í kjölfarið tilkynnt þá til hæstráðanda Sportfive sem á sjónvarpsréttinn að mótinu og hann hafi komið í veg fyrir frekari upptökur af þeirra hálfu. Hugi og Auddi Telja Adolf Inga hafa átt sinn þátt í því að þeim var meinað að taka upp viðtöl fyrir „Í blíðu og stríðu“.Þegar Fréttablaðið náði tali af Adolfi Inga hafnaði hann því alfarið að hafa staðið fyrir því að Audda og Huga var meinaður aðgangur. En er ómyrkur í máli þegar hann lýsir framgöngu „strákanna hinna“. Segir þá hafa orðið sér til skammar og brotið allar hugsanlegar reglur um framgöngu fjölmiðla á mótinu. Meðal annars með því að fara inn á bannsvæði. Fjölmargir hafi hneykslast auk sín. „Yfirmaður Sportfive kom að máli við mig og vildi vita hvort þeir störfuðu á vegum RÚV,“ segir Adolf.„Ég þverneitaði fyrir það enda hefði þetta getað komið okkur ákaflega illa. En ég sýndi þeim síðuna sem strákarnir starfa fyrir. Þar gat hann séð hvað þeir voru að gera og fyrir hvern. Mér finnst þetta auðvitað leiðinlegt fyrir stuðningsmannaklúbbinn en menn geta ekki komið hingað út og hagað sér eins og þeir vilja.“ Fjalar Sigurðsson hjá stuðningsmannaklúbbnum „Í blíðu og stríðu“ viðurkennir að ferð þeirra félaga hafi verið ákveðin með of stuttum fyrirvara og þarna hafi verið gerð ákveðin mistök. Hann segir stuðningsmannafélagið hafa átt í góðu samstarfi við RÚV. „Við vissum að þeir fóru þangað án réttu pappíranna og að því gæti farið svona,“ segir Fjalar.
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Sjá meira