Innlent

Yfirheyrslur yfir hnífstungumanninum í dag

Yfirheyrslur hefjast í dag á Selfossi yfir erlendum verkamanni, sem veitti vinnufélaga sínum áverka með hnífi í vinnubúðum við Hellisheiðarvirkjun í fyrrinótt.

Maðurinn gaf sig fram við lögreglu í Reykjavík í gær, en var fluttur austur á Selfoss í gærkvöldi þar sem árásin var framin í umdæmi lögreglunnar í Árnessýslu. Ekkert liggur fyrir um hvort krafist verður gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir honum. Jafnframt verður skýrsla tekin af vitnum að atvikinu í dag




Fleiri fréttir

Sjá meira


×