Heimilisbragur - þrjár stjörnur 11. janúar 2007 15:00 Snotur bók um heimili á Íslandi í aldarbyrjun, samræmd tísku síðmódernismans.
Litprentuð ljósmyndabók Gunnars Sverrissonar með myndasyrpum af íslenskum heimilum sem þær Elsa Ævarsdóttir og Halla Bára Gestsdóttir völdu, kom út fyrir jól hjá forlagi Nennu. Hún er með inngangi á ensku og íslensku, er með mjúkum spjöldum, fallega prentuð og vönduð í öllum frágangi. Litið er inn á heimili, hvergi er mann að sjá, heldur eru myndir Gunnars kyrralífsmyndir, flestar teknar við náttúrulegt ljós sýnist manni, jafnvel ljós inni í híbýlum ekki nýtt til að kýla upp drama rýmis og hluta: það er sólbjartur morgun og enginn heima. Mér taldist til að heimsótt væru tuttugu heimili. Bækur sem þessar eru skilgetin afkvæmi innréttingablaðanna: hingað hafa borist um langa hríð slík blöð, bresk, frönsk, þýsk og norræn. Ytra eru þau málgögn iðnaðar í hverju landi. Ítölsku blöðin eru til dæmis uppfull af flísum sem við sjáum aldrei. Hér heima hafa Hús og híbýli og Veggfóður elt þessa bylgju sem þróaðist út úr almennari lífsstíls- og skemmtiblöðum. Heimsókn í ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu, heimsókn á Bessastaði var upphafið hér á landi af slíkum myndasyrpum og birtust í Vikunni. Það sem vekur raunar helst athygli manns við Heimilisbrag Gunnars og þeirra er söguleysið: mestallur húsbúnaður sem þar sést er frekar nýr af nálinni, eldra húsnæði hefur undantekningalaust verið gert upp og breytt. Íslensk myndlist er öll í yngri kantinum á veggjum þessara tuttugu heimila (Pétur Gautur vinsæll) og ljósmyndir eru að auka hlut sinn sem veggskraut en þar erum við hefðarlaus – fólk þekkir ekki íslenska ljósmyndara. Eldri mublur sjást varla. Hvorki millistríðsárahúsgögnin, kunnugleg íslensk húsgögn né danskt dót frá miðri öldinni. Hér er flestallt nýtt og keypt úr þremur búðum í Reykjavík á síðustu fimm árum. Kristján B. Jónasson bókmenntafræðingur vekur athygli á hlutadýrkun okkar á spjallsíðu sinni (www.kristjan.blog.is): „Sú gjörbylting hefur orðið á háttum okkar að almennt er fólk flinkt í að tala um húsgögn. Því hafði ég aldrei kynnst áður en ég fór til útlanda og hitti fólk sem hrósaði teppum eða skápum eða pennasetti í annarra manna húsum og fannst sjálfsagt að maður áttaði sig sjálfur á slíkum smáatriðum,“ segir hann í færslu 8. desember. Þetta er eins og hver önnur firra: hér var mikil endurnýjunarþörf á húsgögnum eftir stríðið samfara stækkun borgar og þorpa. Frægar eru sögurnar þegar sænsku bátarnir komu hingað að lestar voru þar fullar af nýjum húsgögnum. Enn eru til húsmunir hér sem keyptir voru af loftárásaútsölum stríðsáranna. Og víða á heimilum eldri kynslóðarinnar eru millistríðsárahúsgögnin framleidd á verkstæðum þess tíma. Þjóðin kunni að nefna hluti fyrir daga Frikka Weiz; silfur og plett, postulín frá ólíkum verksmiðjum Evrópu er enn til í skápum hér sumt yfir hundrað ára gamalt. Stell frá nafntoguðum verksmiðjum þekktu allir: Bing og Gröndal og Arabíu.Hér hafði fólk talað um húsmuni í áraraðir, nei, aldir áður en Kristján B. Jónasson varð til – sem hugmynd. Hitt er rétt hjá Kristjáni að bækur eins og Heimilisbragur Nennu er heimild rétt eins og bók Péturs Ármannssonar um íslensk hús, Heimili og húsagerð 1967-1987 (1987 ) Íslenzk hús (1959) – mætti endurprenta þær báðar – að ógleymdum öllum árgöngum af Húsum og híbýlum. Heimilisbragur er fallega gerð bók og áhugaverð öllum sem sinnu hafa um sitt nánasta umhverfi. Stíll hennar er nokkuð uppstilltur og amstur dagsins þaðan fjarri. Þverskurður heimilanna er einsleitur sem ber frekar vitni um smekk ritstjóranna en allra hinna. Bókin er samt merkilegur vitnisburður og hefur reynst gestum og gangandi áhugaverð um jól og áramót sem skoða hana fram og tilbaka sér til skemmtunar. Páll Baldvin Baldvinsson
Mest lesið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Tónlist „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Lífið Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Tónlist „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Sjá meira