Hræringar í hárgreiðslubransanum 9. janúar 2007 11:45 Böddi og Simbi eru í skýjunum með eigendaskiptin en Böddi keypti hárgreiðslustofuna Jóa og félaga af Simba á dögunum. MYND/Valgarður
Hárgreiðslumaðurinn Böðvar Þór Eggertsson, eða Böddi, hefur keypt hárgreiðslustofuna Jói og félagar auk Paul Mitchell heildsölunnar af Sigmundi Sigurðssyni, eða Simba, sem hefur átt stofuna frá upphafi. „Við ætlum ekki að breyta neinu í rekstri stofunnar heldur bara halda sama starfsfólki og sama klassa og verið hefur,“ segir Böddi, sem starfað hefur á hárgreiðslustofunni Solid undanfarin ár. „Við fáum samt líklega meira af góðu fólki til okkar og söfnum saman í gott teymi. Heildsöluna ætla ég samt að reyna að efla heilmikið á næstunni. Svo er bara að fylgjast vel með og vera inni í öllu, hafa frábæra stemningu og húmorinn í lagi. Það er númer eitt, tvö og þrjú,“ segir Böddi hress og kátur. Simbi ætlar að starfa áfram á Jóa og félögum og leigja stól af Bödda. „Ég held bara áfram og sé til þess að hann fari vel með þetta allt saman og verð með puttana í þessu alveg eins og ég mögulega get,“ segir hann og hlær. „Ég vil náttúrlega ekki sjá á eftir þessu öllu saman nema þetta sé vel gert þannig að ég verð með augun úti um allt.“ Simbi segist eiginlega vera að snúa dæminu við því flestir byrji á því að leigja sér stóla og fari síðan út í rekstur en hann ætli sjálfur að enda á að leigja stól. „Annars er ég nú ekkert að fara að hætta enn þá því ég er náttúrlega svo ungur enn. Ástæðan fyrir því að ég ákvað að hætta með stofuna núna er að ég var orðinn leiður á rekstrinum þannig að mig vantaði svona smá púst. Betra og kröftugra púst hefði ég ekki getað fengið en Böðvar Þór,“ segir Simbi og er hæstánægður með breytingarnar.
Mest lesið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Joe Don Baker látinn Bíó og sjónvarp Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið Fleiri fréttir Vaktin: Seinna undankvöld Eurovision VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Sjá meira