Spears að brotna saman 3. janúar 2007 15:30 Spears Féll í yfirlið í nýársgleði í Las Vegas og var borin út af öryggisvörðum.
Britney Spears var sögð hafa fallið í yfirlið á nýárssamkomu sökum of mikillar drykkju en hún var borin út af skemmtistað í Las Vegas að sögn sjónarvotta. Atvikið átti sér stað á næturklúbbnum Pure sem staðsettur er í Ceasar‘s Palace í Las Vegas en Spears hafði verið fengin til að vera gestgjafi í boðinu og ætlaði að stíga léttan dans fyrir gesti og gangandi. Spears og föruneyti hennar, sem taldi í kringum 27 manns, hófu daginn reyndar snemma og byrjuðu á veitingastað nálægt næturklúbbnum þar sem hersingin lagði svokallað VIP-herbergi undir sig og drakk ótæpilegt magn af kampavíni. Spears mætti síðan í teitið rétt fyrir miðnætti, sýndi sínar bestu hliðar þegar lagið I‘m a Slave for You hljómaði og fagnaði nýju ári með því að opna fokdýra kampavínsflösku sem væntanlega hefur verið kláruð á mettíma en síðan fór að síga á ógæfuhliðina. Breska götublaðið The Sun hefur eftir einum sjónarvotta að Spears hafi dansað nokkuð mikið en rétt fyrir klukkan eitt vildi hún fara heim. „Spears reyndi að standa upp en féll í yfirlið,“ sagði eitt vitna við blaðið en vinir söngkonunnar færðu hana á öruggan stað þar sem lífverðir Britney tóku við henni. „Þeir báðu um aðstoð og ég heyrði eina vinkonuna biðja um teppi þannig að ekki væri hægt að taka ljósmyndir af henni,“ bætti annar sjónarvottur við. „Við sáum Britney Spears síðan borna út,“ lýstu vitnin tvö yfir. Umboðsmaður Britney Spears, Larry Rudolph, bar hins vegar allar sögusagnir um að söngkonan hefði verið ofurölvi til baka og sagði að hún hefði einfaldlega ferðast mikið að undanförnu og væri líkamlega þreytt. „Hún hefur það fínt, hún var bara þreytt og klukkan var auk þess orðin margt,“ lýsti Rudolph yfir.
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira