Lífið

Spears að brotna saman

Spears Féll í yfirlið í nýársgleði í Las Vegas og var borin út af öryggisvörðum.
Spears Féll í yfirlið í nýársgleði í Las Vegas og var borin út af öryggisvörðum.

Britney Spears var sögð hafa fallið í yfirlið á nýárssamkomu sökum of mikillar drykkju en hún var borin út af skemmtistað í Las Vegas að sögn sjónarvotta.

Atvikið átti sér stað á næturklúbbnum Pure sem staðsettur er í Ceasar‘s Palace í Las Vegas en Spears hafði verið fengin til að vera gestgjafi í boðinu og ætlaði að stíga léttan dans fyrir gesti og gangandi. Spears og föruneyti hennar, sem taldi í kringum 27 manns, hófu daginn reyndar snemma og byrjuðu á veitingastað nálægt næturklúbbnum þar sem hersingin lagði svokallað VIP-herbergi undir sig og drakk ótæpilegt magn af kampavíni.

Spears mætti síðan í teitið rétt fyrir miðnætti, sýndi sínar bestu hliðar þegar lagið I‘m a Slave for You hljómaði og fagnaði nýju ári með því að opna fokdýra kampavínsflösku sem væntanlega hefur verið kláruð á mettíma en síðan fór að síga á ógæfuhliðina. Breska götublaðið The Sun hefur eftir einum sjónarvotta að Spears hafi dansað nokkuð mikið en rétt fyrir klukkan eitt vildi hún fara heim. „Spears reyndi að standa upp en féll í yfirlið,“ sagði eitt vitna við blaðið en vinir söngkonunnar færðu hana á öruggan stað þar sem lífverðir Britney tóku við henni. „Þeir báðu um aðstoð og ég heyrði eina vinkonuna biðja um teppi þannig að ekki væri hægt að taka ljósmyndir af henni,“ bætti annar sjónarvottur við. „Við sáum Britney Spears síðan borna út,“ lýstu vitnin tvö yfir.

Umboðsmaður Britney Spears, Larry Rudolph, bar hins vegar allar sögusagnir um að söngkonan hefði verið ofurölvi til baka og sagði að hún hefði einfaldlega ferðast mikið að undanförnu og væri líkamlega þreytt. „Hún hefur það fínt, hún var bara þreytt og klukkan var auk þess orðin margt,“ lýsti Rudolph yfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.