Átak lögreglu í umferðarmálum á landsvísu sem hófst í fyrrasumar mun halda áfram í ár með aukinni fjárveitingu. Í sumar fengust áttatíu milljónir króna frá samgöngumálaráðuneytinu til að halda áfram sérstöku eftirliti á þjóðvegunum með hraðakstri og ölvunarakstri. Þetta kemur ofan á öll hefðbundin löggæslustörf.
Hjálmar Björgvinsson, aðalvarðstjóri hjá Ríkislögreglustjóra, segir verkefnið byggjast á samvinnu embættisins við Vegagerðina og Umferðarstofu. Fjárveitingin var að mestu notuð í tækjakaup fyrir lögreglubíla og laun fyrir aukavaktir lögregluþjóna.