Fær ekki allar lóðirnar 20. febrúar 2006 19:10
Steinnunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, segir að ekki komi til greina að einn og sami maðurinn fái allar einbýlishúsalóðirnar nema eina við Úlfarsfell. Minnihlutinn í Reykjavík segir stöðuna sem upp er komin vegna útboðsins lýsandi fyrir það öngstræti sem lóðastefna R-listans er kominn í. Steinunn Valdís Óskarsdóttir segir það stríða gegn markmiðum útboðsins að einn einstaklingur fái úthlutað þrjátíu og níu einbýlishúsalóðum og hyggst leggja tillögu fyrir borgarráð á fimmtudag þar sem það verður tryggt að svo verði ekki. Tillagan gerir ráð fyrir að Benedikt Jósepsson sem átti hæsta tilboð í lóðirnar fái úthlutað einni lóð, sá sem átti næsthæsta tilboðið fá aðra og svo koll af kolli. Að sögn Benedikts hefur honum ekki verið boðið að samningaborðinu og lítur hann svo á að hann hafi allar lóðir þangað til. Steinunn Valdís átti ekki von á að þurfa að greiða skaðabætur vegna breytinganna á úthlutunarreglunum og er sannfærð um að borgin sé með lögin sín megin. Vilhjálmur Þ. Vilhjámsson borgarfulltrúi sjálfstæðisflokksins segir stefnu R-listans í lóðamálum komna í ógöngur. Um lóðaúthlutunina við Úlfarsfell sagði hann að það yrði að fara yfir lögfræðilega þætti málsins ef reglum um útboðið verður breytt á fimmtudag. Vilhjálmur segir ennfremur að R-listinn hafi keyrt upp lóðaverð með of litlu framboði af einbýlishúsalóðum og segir borgarstjóra tala eins og hann sé ekki staddur í Reykjavík. Hann segir lóðastefnu R-listans gjaldþrota og aðeins með auknu framboði lóða, þá sérstaklega einbýlishúsalóða, verði hægt að koma málum í réttan farveg. Vilhjámi finnst einkennilegt að flokkur sem segir sig jafnaðarflokk telji eðlilegt að lóðaverð sé eins hátt og raun ber vitni. Þessu hafnar borgarstjóri alfarið og segir alls ekki hægt að kenna borgaryfirvöldum um lóðaverð, það séu allir sérfræðingar sammála um það. --Steinunn
Fréttir Innlent Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira