Ráðherra segir óþolandi að samningurinn um flugið sé ekki haldinn 20. febrúar 2006 15:04 þegar skrifað var undir samninginn um flugið að ekkert flugskýli væri til staðar fyrir vélina. MYND/GVA
Heilbrigðisráðherra segir það óþolandi að samningur um sjúkraflug frá Vestmannaeyjum sé ekki haldinn. Þrjú tilvik komu upp í síðustu viku þar sem sjúkraflugvél var ekki til staðar í Eyjum þegar á þurfti að halda. Í síðustu viku var sagt frá tveimur tilvikum þar sem þörf var á sjúkraflugi frá Vestmannaeyjum en engin vél var til staðar. Í fyrra skiptið var um ræða fárveikt tveggja ára gamalt barn en í síðara tilvikinu þurfti að flytja karlmann með beinbrot til Reykjavíkur. Síðastliðinn föstudag var svo kallað eftir vélinni í þriðja skiptið á þremur dögum, án þess að hún væri til staðar. Ekki var unnt að fá upplýsingar á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja í morgun um ástand hins slasaða eða veika sem þá átti í hlut. Sjúkravélin kom hins vegar aftur til Eyja seinna á föstudeginum. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir að ekki verði sýnd nein linkind við að fá samningnum um sjúkraflugið, sem gerður var nýverið við Landsflug, framgengt. Það að vélin skuli ekki hafa verið til taks í Eyjum í tilvikunum þremur sé skýlaust brot á samningnum og ráðuneytið muni ganga hart fram í þessum málum. Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum fengu þá skýringu frá forsvarsmönnum Landsflugs í dag að meginástæðan fyrir því að vélin hafi ekki verið til staðar í umræddum tilvikum sé sú að það vanti flugskýli í Eyjum fyrir vélina sem notuð er í sjúkraflugið, því Dornier-vélar af þeirri tegund sem umrædd flugvél er þurfi ávallt að geyma innandyra. Heilbrigðisráðherra gefur lítið fyrir þessar skýringar og segir að það hafi legið fyrir þegar skrifað var undir samninginn um flugið að ekkert flugskýli væri til staðar fyrir vélina. Ef forsvarsmenn Landsflugs hafi skrifað undir hann, vitandi vits að þeir ætluðu að fara á svig við samninginn, sé það alvarlegt mál.
Fréttir Innlent Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Sjá meira