Annar maðurinn lést en hinn slasaðist alvarlega 26. febrúar 2006 10:01
Annar mannanna tveggja sem voru í jeppa sem féll niður í sprungu á Hofsjökli í gær var látinn þegar björgunarmenn komu að. Hinn maðurinn er alvarlega slasaður og liggur á gjörgæslu.Klukkan var rétt að verða eitt eftir miðnætti í nótt þegar þyrla Varnarliðsins lenti við Landspítalann háskólasjúkrahús með manninn sem slasaðist í slysinu á Hofsjökli síðdegis í gær. Hann liggur nú á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi og er líðan hans stöðug eftir atvikum. Hann er ekki í öndunarvél en er til eftirlits hjá læknum á gjörgæsludeildinni.Tveir karlmenn á þrítugsaldri voru í bílnum sem féll niður í sprungu við Hásteina á Hofsjökli síðdegis í gær. Þrjár þyrlur og um þrjú hundruð björgunarsveitarmenn tóku þátt í björgunaraðgerðum. Þyrla danska herskipsins Tritorn var fyrst á staðinn. Áhöfn hennar átti í nokkrum vandræðum með að finna slysstaðinn en það tókst eftir nokkrar mínútur. Skömmu síðar komu tvær þyrlur Varnarliðsins á vettvang með björgunarútbúnað, um það bil fimmtíu björgunarsveitarmenn komu líka á slysstað.Tveir sjúkraflutningamenn af höfuðborgarsvæðinu sem komu á svæðið í þyrlu þurftu að síga á annan tug metra niður í sprunguna til að ná til mannanna þar sem þeir voru fastir í jeppa sínum. Var annar maðurinn látinn þegar að þeim var komið. Jeppinn var mjög illa skemmdur eftir fallið og þurftu björgunarmenn að beita klippum til að skera hann sundur svo hægt væri að ná mönnunum út. Mennirnir voru síðan hífðir upp úr sprungunni og sá slasaði fluttur með þyrlu til Reykjavíkur sem fyrr segir.
Fréttir Innlent Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fleiri fréttir Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Sjá meira