Ekki sanngjarnt að fólk missi réttindin í nýrri vinnu 13. september 2006 11:57 MYND/Haraldur Jónasson
Flutningur réttinda launafólks á milli sjúkrasjóða í stéttarfélögum er sanngirnismál, það eru formenn ASÍ og BSRB sammála um. Mikill munur á bolmagni sjúkrasjóða í opinbera kerfinu og á almenna markaðnum kemur hins vegar í veg fyrir að launafólk fái réttindi sín flutt þegar það skiptir um vinnu frá hinu opinbera yfir á almenna markaðinn eða öfugt. Þeir sem hafa borgað í stéttarfélag síðustu ár hafa safnað sér inn réttindum í sjúkrasjóðum verkalýðsfélaganna. Þessi réttindi eru hins vegar mjög mismunandi eftir því hvort fólk vinnur í opinbera geiranum eða á almenna markaðnum. Verkalýðsfélög innan vébanda ASÍ taka eitt prósent af launum í sjúkrasjóði en starfsmenn hins opinbera greiða aðeins 0,25 til 0,35 prósent í sjúkrasjóð. Auk þess hafa sjúkrasjóðir innan ASÍ verið starfræktir síðan fyrir 1980 en sjúkrasjóðir félaga BSRB voru stofnaðir fyrir fjórum árum. Þetta hefur komið í veg fyrir að veikindaréttur sem fólk hefur safnað fylgi því þegar það skiptir um vinnu milli opinbera geirans og hins almenna markaðar. Ef starfsmaður veikist þannig á fyrstu dögum í nýrri vinnu eftir að hafa flutt sig frá ASÍ til BSRB eða öfugt, þá á hann hvorki rétt á sjúkradagpeningum frá vinnuveitanda né frá stéttarfélaginu. Þegar hefur verið samið um að þessi réttindi flytjist milli sjúkrasjóða þegar fólk skiptir um vinnu hjá hinu opinbera eða skiptir um stéttarfélag innan vébanda ASÍ en ef það fer frá hinu opinbera á almennan markað eða öfugt missir það réttindi sem það hefur safnað upp. Lögfræðingur ASÍ, Magnús Norðdahl, segir þarna greinilegan mun á réttindum starfsmanna hjá hinu opinbera og hjá starfsmönnum á almennum markaði. Munurinn sé jafnframt víðtækari og felist ekki eingöngu í veikindaréttindum. Meiri hreyfing sé nú á vinnumarkaðnum milli þessara tveggja póla, meðal annars með einkavæðingu ríkisfyrirtækja. Því segir hann ljóst að þarna þurfi að liðka fyrir því að fólk geti skipt um vinnu og haldið sínum réttindum og í því þurfi verkalýðshreyfingarnar að vinna, það sé hins vegar verkefni formanna félaganna og vinnuveitenda. Formaður BSRB sagði í gær að kerfið væri vanþróað að þessu leyti og það hlyti að teljast sanngirnismál að fólk missti ekki þau réttindi sem það væri búið að ávinna sér þó það skipti um vinnu. Hann segir það samningsatriði sem þyrfti að nást samkomulag um, að fólk ætti a.m.k. lágmarksréttindi, jafnvel í nýrri vinnu. Formaður ASÍ var honum sammála um að á þessu þyrfti að ráða bót.
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Erlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Sjá meira