Tekist á um reykingafrumvarp 22. febrúar 2006 23:39
Tekist var á um hvort banna ætti reykingar á veitingastöðum á opnum fundi sem Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hélt í gærkvöldi. Framsögumenn voru þingmennirnir Birgir Ármannsson, Sjálfstæðisflokki og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Samfylkingu og Kristinn Tómasson yfirlæknir Vinnueftirlits ríkisins. Ásta Ragnheiður, sem er fylgjandi reykingabanninu gaf lítið fyrir þau rök að þeir sem ekki vildu vinna á veitingastöðum sem leyfa reykingar gætu fengið sér aðra vinnu. Nefndi hún í því sambandi tónlistarmennina Ingimar Eydal, Svavar Gests, Hauk Morthens og Ellý Vilhjálms sem öll létust af völdum krabbameins sem rekja mætti til óbeinna reykinga en ekkert þeirra reykti. Birgir Ármannsson benti á að þegar skerða ætti atvinnufrelsi og eignarrétt einstaklingsins af heilsufarsástæðum þá bæri að fara vægustu leiðina en hann telur að frumvarpið sem nú liggur fyrir gangi of langt. Þar sé til dæmis ekki gert ráð fyrir að veitingamenn geti sett upp sérstök reykherbergi eins og Svíar hafa gert með sínum lögum sem og Ítalir og Tékkar. Kristinn Tómasson yfirlæknir sagði að markmið vinnu væri velmegun og vellíðan. Hann sagði algengi öndunarfærakvilla hjá starfsfólki á veitingastöðum snarlækka við reykingabann. Einnig benti hann á að í þessari atvinnugrein starfi um það bil fimm þúsund manns, aðallega konur á barneignaaldri en áhætta ófrískra kvenna af óbeinum reykingum er mjög mikil. Að hans mati ætti það að vera næg rök til að banna reykingar á veitingastöðum. Framsögumenn voru þingmennirnir Birgir Ármannsson, Sjálfstæðisflokki og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Samfylkingu og Kristinn Tómasson yfirlæknir Vinnueftirlits ríkisins. Ásta Ragnheiður, sem er fylgjandi reykingabanninu gaf lítið fyrir þau rök að þeir sem ekki vildu vinna á veitingastöðum sem leyfa reykingar gætu fengið sér aðra vinnu. Nefndi hún í því sambandi tónlistarmennina Ingimar Eydal, Svavar Gests, Hauk Morthens og Ellý Vilhjálms sem öll létust af völdum krabbameins sem rekja mætti til óbeinna reykinga en ekkert þeirra reykti. Birgir Ármannsson benti á að þegar skerða ætti atvinnufrelsi og eignarrétt einstaklingsins af heilsufarsástæðum þá bæri að fara vægustu leiðina en hann telur að frumvarpið sem nú liggur fyrir gangi of langt. Þar sé til dæmis ekki gert ráð fyrir að veitingamenn geti sett upp sérstök reykherbergi eins og Svíar hafa gert með sínum lögum sem og Ítalir og Tékkar. Kristinn Tómasson yfirlæknir sagði að markmið vinnu væri velmegun og vellíðan. Hann sagði algengi öndunarfærakvilla hjá starfsfólki á veitingastöðum snarlækka við reykingabann. Einnig benti hann á að í þessari atvinnugrein starfi um það bil fimm þúsund manns, aðallega konur á barneignaaldri en áhætta ófrískra kvenna af óbeinum reykingum er mjög mikil. Að hans mati ætti það að vera næg rök til að banna reykingar á veitingastöðum.
Fréttir Innlent Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Fleiri fréttir Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Sjá meira