Ólga meðal kennara vegna samkomulags menntamálaráðherra og kennaraforystunnar 4. febrúar 2006 10:56 MYND/Teitur Jónasson
Mikil ólga er meðal kennara í menntaskólum landsins vegna samkomulags menntamálaráðherra og kennaraforystunnar sem undirritað var í fyrradag. Samkvæmt því verður höfð samvinna um endurskoðun á námi í tenslum við styttingu námstíma til stúdentsprófs. Félag kennara Menntaskólans í Reykjavík hefur ályktað gegn samkomulaginu og kennarar í öðrum menntaskóla hafa jafnvel rætt úrsögn úr Kennarasambandinu. Fréttastofa NFS hefur rætt við kennara í 4 menntaskólum og segja þeir kennara undrandi og slegna yfir þessu samkomulagi. Enn sem komið er hafa þó Kennarar í Menntaskólanum í Reykjavík einir ályktað gegn samkomulaginu. Guðmundur J. Guðmundsson, trúnaðarmaður kennara í MR, segir styttingu náms til stúdentsprófs varasama og geta endað með skelfingu fyrir menntakerfið. Hann segir það vilja kennara að menntamálaráðherra dragi hugmyndir sínar um skerðingu til baka og taki málið þannig fyrir að öll skólastig verði tekin fyrir og endurskoðuð sem ein heild. Guðmundur segir formann Kennarasambands Íslands ekki hafa fengið neitt umboð frá félagsmönnum til þessarar samkomulagsgerðar. Í bréfi sem stjórn Félags framhaldsskólakennara hefur sent félagsmönnum segir að stjórn félagsins og kennarasamtökin hafi verið þeirrar skoðunar að hagsmunum nemenda og skóla væri betur borgið með að hafa áhrif á málið en að láta það ógert. Samkomulagið sé ekki merki um að kennarasamtökin hafi bakkað með stefnu sína í málinu og ætli aldrei að ljá máls á niðurskurði á námi nemenda og minni menntun.
Fréttir Innlent Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Innlent Fleiri fréttir Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Sjá meira