Innlent

Níu hafa greinst með berkla í ár

Þorsteinn Blöndal.
Mikilvægt er að skoða þá útlendinga sem hyggjast setjast að hér á landi til að ganga úr skugga um að þeir séu ekki smitberar og meðhöndla þá með viðeigandi hætti.
Þorsteinn Blöndal. Mikilvægt er að skoða þá útlendinga sem hyggjast setjast að hér á landi til að ganga úr skugga um að þeir séu ekki smitberar og meðhöndla þá með viðeigandi hætti.

Síðustu tíu ár hafa rúmlega 100 manns greinst með berkla hér á landi og er um helmingur þeirra með erlent ríkisfang. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjasta hefti Farsóttafrétta.

Stærstur hluti þeirra Íslendinga sem greinast með berkla er aldraðir sem hafa smitast á fyrri hluta síðustu aldar og gengið með berklabakteríuna án þess að veikjast. Það sem af er þessu ári hafa níu manns greinst með berkla, þar af fimm með erlent ríkisfang.

Þorsteinn Blöndal yfirlæknir á lungna- og berklavarnadeildinni í Mjódd segir berkla skiptast í leynda bakteríusýkingu, sem er einkennalaus og án smithættu, og berklaveiki sem getur smitast á milli manna. „Reikna má með að einn af hverjum þremur berklasjúklingum séu smitberar og það er mikilvægt að skoða þá útlendinga sem hafa hugsað sér að setjast að hér á landi til að ganga úr skugga um að þeir séu ekki smitberar og meðhöndla þá síðan með viðeigandi hætti.“

Þorsteinn segir tiltölulega auðvelt að lækna berkla en þá má meðhöndla á 6-9 mánuðum með nokkrum tegundum lyfja.

Í Farstóttafréttum kemur fram að rík ástæða sé til að fylgjast með berklasmiti meðal innflytjenda til Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×