Lífið

Giftist rokkara

Pamela Andersson Segist vera loksins búin að finna hamingjuna og ætlar að ganga í það heilaga með rokkaranum Kid Rock.
Pamela Andersson Segist vera loksins búin að finna hamingjuna og ætlar að ganga í það heilaga með rokkaranum Kid Rock. mynd/gettyimages

Hin brjóstgóða Pamela Andersson hefur gefið út þá yfirlýsingu á heimasíðu sinni að hún hyggst ganga í það heilaga 29. júlí næstkomandi með rokkaranum Kid Rock. Parið var saman árið 2002 en slitu sambandinu eftir ár en nú virðast þau hafa tekið saman á ný og ætla að gifta sig. Pamela er mjög ánægð með þannan ráðahag og segir syni sína elska nýja stjúpföður sinn. Ég er himinlifandi. Mér líður eins og ég sé loksins búin að sjá ljósið.

Pamela var áður gift hinum óstýriláta rokkara Tommy Lee sem er þessa dagana á fullu að finna rokkstjörnu Bandaríkjanna og hún á með honum syni sína tvo.

Kid Rock og Pamela ætla að halda brúðkaupið á skútu hjá St. Tropez.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.