Varnarviðræður hefjast á morgun 1. febrúar 2006 19:30
Viðræður um varnarmál milli Íslands og Bandaríkjanna hefjast á nýjan leik í Washington á morgun. Ekkert fæst uppgefið um efni þeirra en líkur eru þó taldar á að Íslendingar muni taka við rekstri björgunarþyrlusveitarinnar. Utanríkisráðuneytið verst allra frétta af viðræðunum, hvorki fæst uppgefið hvert efni þeirra nákvæmlega sé né hverjir fari fyrir íslensku sendinefndinni. Albert Jónsson sendiherra verður þó að öllum líkindum áfram formaður hennar enda þótt Bandaríkjamönnum eigi að hafa gramist mjög framganga hans í Washington í haust. Robert Loftis, sendiherra í bandaríska utanríkisráðuneytinum, mun áfram sitja hinum megin borðsins. Sem fyrr verður skipting kostnaðar við rekstur varnarstöðvarinnar væntanlega aðalumræðuefnið, og jafnframt helsta ágreiningsefnið. Hann er á bilinu 15-16 milljarðar króna en Íslendingar hafa ekki verið til viðræðu um annað en að axla lítinn hluta þeirrar fjárhæðar. Samkvæmt heimildum NFS gæti sú hugmynd um að íslensk stjórnvöld tækju yfir rekstur björgunarþyrlusveitarinnar aftur á móti orðið til að höggva á hnútinn. Bandaríkjaher er sagður hafa mun meiri þörf fyrir þyrlurnar en orrustuþoturnar annars staðar í heiminum og ef Íslendingar sjá um að kaupa nýjar þyrlur og reka þær eru góðar líkur taldar á að þoturnar verði hér á landi áfram. Það þætti hins vegar að skera á tengslin á milli þyrlusveitarinnar og þotusveitarinnar og því er langt í frá sjálfgefið að þetta verði að veruleika.
Fréttir Innlent Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Fleiri fréttir Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Sjá meira