Lífið

Hátíðardagskrá og opið hús á afmæli Kristjáns Eldjárns

Kristján að störfum
Kristján að störfum

Miðvikudaginn 6. desember næstkomandi verða 90 ár liðin frá fæðingu dr. Kristjáns Eldjárns fyrrum þjóðminjavarðar og forseta Íslands. Í tilefni af því er efnt til hátíðardagskrár í Þjóðminjasafni Íslands sem hefst klukkan 12 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins.

Við þetta tilefni verða m.a. kynntar rannsóknaniðurstöður ársins 2006 og mun dr. Anna Lísa Rúnarsdóttir mannfræðingur flytja fyrirlestur um verkefnið sem hún vann að í stöðunni. Hvernig skyldi hafa verið að búa í torfbæ um miðja 20. öld? Þetta er meðal þess sem Anna Lísa velti fyrir sér en hún rannsakaði lífið í torfbæjunum á tímabilinu 1850 til búsetuloka fram yfir 1950.

Daglegt líf fólks í bæjunum, gestagangur og áhrif iðnbyltingarinnar vöktu áhuga hennar. Ótrúlega stutt virðist síðan ný byggingarefni leystu hin gömlu af hólmi og í tengslum við rannsókn sína tók Anna Lísa meðal annars viðtöl við fjölda fólks sem man eftir að hafa átt heima í torfbæjum.

Í framhaldi af erindi Önnu Lísu verður í Forsalnum opnuð sýning sem byggir á rannsóknum hennar: Á tímum torfbæja: híbýlahættir og efnismenning í íslenska torfbænum frá 1850. Myndir og textar ásamt úrvali gripa varpa ljósi á þær miklu breytingar sem urðu á þessu síðasta tímabili torfbæjanna. Þetta er þó einungis einn liður í hátíðardagskrá Þjóðminjasafnsins þann 6. desember.

Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður flytur ávarp og fulltrúi afkomenda dr. Kristjáns Eldjárns afhendir gjöf bóka- og skjalasafns hans. Greint verður frá ráðningu í rannsóknarstöðu dr. Kristjáns Eldjárns árið 2007 og milli 13 og 16 verður opið hús í Setbergi, nýju húsi Þjóðminjasafnsins að Suðurgötu 43.

Í Setbergi eru nýjar aðalskrifstofur og bóka- og heimildasafn Þjóðminjasafnsins. Starfsmenn verða á staðnum og kynna starfsemina og gefst gestum og gangandi tækifæri til að hitta þá að máli og kynnast innri starfsemi Þjóðminjasafnsins ekki síður en sýningum.

Í tengdum skjölum er dagskrá og ýtarlegri upplýsingar um það sem verður á döfinni.

Bustarfell í Vopnafirði
.
Selið í Skaftafelli
.
Núpsstaða bærinn
.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.