Hátíðardagskrá og opið hús á afmæli Kristjáns Eldjárns 5. desember 2006 13:00 Kristján að störfum
Miðvikudaginn 6. desember næstkomandi verða 90 ár liðin frá fæðingu dr. Kristjáns Eldjárns fyrrum þjóðminjavarðar og forseta Íslands. Í tilefni af því er efnt til hátíðardagskrár í Þjóðminjasafni Íslands sem hefst klukkan 12 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins. Við þetta tilefni verða m.a. kynntar rannsóknaniðurstöður ársins 2006 og mun dr. Anna Lísa Rúnarsdóttir mannfræðingur flytja fyrirlestur um verkefnið sem hún vann að í stöðunni. Hvernig skyldi hafa verið að búa í torfbæ um miðja 20. öld? Þetta er meðal þess sem Anna Lísa velti fyrir sér en hún rannsakaði lífið í torfbæjunum á tímabilinu 1850 til búsetuloka fram yfir 1950. Daglegt líf fólks í bæjunum, gestagangur og áhrif iðnbyltingarinnar vöktu áhuga hennar. Ótrúlega stutt virðist síðan ný byggingarefni leystu hin gömlu af hólmi og í tengslum við rannsókn sína tók Anna Lísa meðal annars viðtöl við fjölda fólks sem man eftir að hafa átt heima í torfbæjum. Í framhaldi af erindi Önnu Lísu verður í Forsalnum opnuð sýning sem byggir á rannsóknum hennar: Á tímum torfbæja: híbýlahættir og efnismenning í íslenska torfbænum frá 1850. Myndir og textar ásamt úrvali gripa varpa ljósi á þær miklu breytingar sem urðu á þessu síðasta tímabili torfbæjanna. Þetta er þó einungis einn liður í hátíðardagskrá Þjóðminjasafnsins þann 6. desember. Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður flytur ávarp og fulltrúi afkomenda dr. Kristjáns Eldjárns afhendir gjöf bóka- og skjalasafns hans. Greint verður frá ráðningu í rannsóknarstöðu dr. Kristjáns Eldjárns árið 2007 og milli 13 og 16 verður opið hús í Setbergi, nýju húsi Þjóðminjasafnsins að Suðurgötu 43. Í Setbergi eru nýjar aðalskrifstofur og bóka- og heimildasafn Þjóðminjasafnsins. Starfsmenn verða á staðnum og kynna starfsemina og gefst gestum og gangandi tækifæri til að hitta þá að máli og kynnast innri starfsemi Þjóðminjasafnsins ekki síður en sýningum. Í tengdum skjölum er dagskrá og ýtarlegri upplýsingar um það sem verður á döfinni. Bustarfell í Vopnafirði . Selið í Skaftafelli. Núpsstaða bærinn.
Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Fleiri fréttir Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Sjá meira