Áhættumeðgönguvernd í óvissu 27. október 2006 12:30 Barnshafandi kona. ´MYND/Getty Images
Ljósmæðrafélag Íslands og Félag hjúkrunarfræðinga hafa þungar áhyggjur af því að ekki sé ljóst hvernig áhættumeðgönguvernd verði háttað, nú þegar þrjár vikur eru í að Miðstöð mæðraverndar verði lögð niður í núverandi mynd. Konur sem þurfa á sérstakri meðferð og ráðgjöf að halda á meðgöngu út af meðgöngusykursýki eða meðgöngueitrun vita ekki hvert þær eiga að mæta í skoðun eftir þrjár vikur. Ljósmæðurnar sem hafa byggt upp sérþekkingu í störfum sínum síðustu 6 árin vita ekki hvar eða jafnvel hvort þær eiga að mæta í vinnuna eftir þrjár vikur. Þá verður Miðstöð mæðraverndar flutt af Barónsstígnum þar sem hún hefur verið síðan árið 2000 og í gær var tilkynnt að aðstaða sem byrjað var að byggja upp í Mjódd verður ekki notuð í þessum tilgangi. Í staðinn verður byggð upp ný deild á Landspítala háskólasjúkrahúsi. Guðlaug Einarsdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands, segir þetta til marks um hringlandahátt í heilbrigðiskerfinu að nú eigi að fara að byggja upp þriðju deildina á rúmum fimm árum og ekki sé hægt að ákveða hvort aðstoð við mæður í áhættumeðgöngu verði innan heilsugæslu eða inni á sjúkrahúsum. Þjónustan var veitt inni á Landspítalanum áður en hún var færð til Heilsugæslunnar árið 2000 og nú sé hún aftur á leið inn á sjúkrahúsið. Guðlaug segir engan draga í efa hæfni eða fagmennsku ljósmæðra á LSH en óvissan sé slæm og nú þurfi að hafa hraðar hendur ef mæður á áhættumeðgöngu eigi ekki að standa uppi úrræðalausar um miðjan nóvember.
Mest lesið Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Erlent „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Erlent Stúlkan er fundin Innlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Fleiri fréttir Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vara við aðskotaefni í tei Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Vasaþjófar á ferð í miðborginni Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Hnakkrifust á bak við luktar dyr Stytting hringvegarins sú mesta á þessari öld Sjá meira