Erlent

Mexíkóar mótmæla lögum um landamæravegg

Mexíkóskir leiðtogar gagnrýna lög sem George W. Bush, Bandaríkjaforseti, undirritaði í gær, þess efnis að reisa skuli mannhelda girðingu á landamærum landanna tveggja. Forseti Mexíkó, Vicente Fox, og verðandi forseti Felipe Calderon, segja að þetta muni ekki leysa innflytjendavanda Bandaríkjanna.

Bandaríkjamenn segja girðinguna einnig hafa þann tilgang að koma í veg fyrir hverskonar árásir eða eiturlyfjainnflutning. Áætlað er að á bilinu fjórar milljónir til fimm og hálf milljón Mexíkóa séu ólöglegir innflytjendur í Bandaríkjunum.

Bush sagði í ræðu í gær að þó að Bandaríkjamenn væru innflytjendaþjóð, þá væri þjóðfélag þeirra umfram allt byggt á lögum. Því ætla Bandaríkjamenn, auk girðingarinnar, að koma fyrir öryggismyndavélum, gervihnöttum og ómönnuðum flugförum til að fylgjast með því að ekki streymi fleiri ólöglegir innflytjendur til Bandaríkjanna en orðið er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×