Sútað fiskroð gefur vel í aðra hönd 31. júlí 2006 21:30
Sútað fiskroð með merkinu Nike eða Prada gefur vel í aðra hönd. Rekstrargrundvöllur fyrirtækisins Sjávarleðurs hf. á Sauðárkróki virðist tryggur og í fyrsta sinn frá stofnun þess árið 1995 er það farið að skila hagnaði. Í gamla Loðskinnshúsinu á Sauðárkróki fer fram sútun og litun fiskroðs sem hefur vakið athygli sumra þekktustu tískuhúsa heims. Gunnsteinn Björnsson, framkvæmdastjóri Sjávarleðurs hf., segir að hópur viðskiptavina fyrirtækisins sé dreifðari en áður sem veiti meira öryggi í rekstrinum. Veltan í fyrra hafi numið 50 milljónum króna og verði meiri í ár en 7 starfi hjá Sjávarleðri að jafnaði. Fiskleðrið er af laxi, hlýra og innfluttum Nílarkarfa, og tilraunir með þorskleður vekja góðar vonir. Laxaroðið er eftir sútun sterkara en annað leður af sömu þykkt. Sjávarleður hf. keppir á sama markaði og þeir sem selja snáka- og krókódílaskinn, en munurinn er sá að roðið er ekki af dýrategundum sem kunna að vera í útrýmingarhættu. Gunnsteinn segir fiskleðrið vera dýrt enda sé það fyrst og fremst hugsað sem munaðarvara. Gunnsteinn Björnsson er einn af stærstu eigendum hlutafélagsins ásamt Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, Norðurströnd á Dalvík, sveitarfélaginu Skagafirði, eignarhaldsfélaginu Stökum á Akureyri og fleirum.
Mest lesið Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sjá meira