Ræðst á næstu dögunum 18. júní 2006 18:45
Það ræðst á næstu dögum hvort sátt náist milli Alþýðusambandsins og atvinnurekenda um lög vegna erlends vinnuafls við endurskoðun kjarasamninga. Íslenskt samfélag var ekki undirbúið fyrir breytingar á flæði vinnuafls, segir Halldór Grönwold, aðstoðarframkvæmdastjóri Alþýðusambandsins. Við sögðum í vikunni frá nokkrum Pólverjum sem hafa þurft að búa í tjaldi síðan þeir komu hingað að leita að vinnu. Andrej Hara, sem er tvítugur og kom hingað til lands fyrir einum og hálfum mánuði, bjó í tjaldi í Laugardal í tvær vikur, þrátt fyrir að starfa á hóteli. Góðhjörtuð kona bauð honum húsaskjól eftir frétt NFS og hann er nú laus úr tjaldinu. Fyrra heimili Andrej er farið í ruslið, enda minningarnar ekki góðar. Hann segist aldrei vilja sjá þetta tjald aftur. Eftir 1. maí mega íbúar nýju ríkja Evrópusambandsins koma hingað og vera í sex mánuði án sérstaks leyfis. Því fylgir möguleikinn á því að hingað komi fólk eins og fyrrgreindir Pólverjar, sem ekkert eiga og engar ráðstafanir hafa gert og við þessu er íslenskt samfélag ekki búið. Halldór Grönwold segir að ekki hafi verið nóg gert til þess að sjá til þess að fólk sé ekki beinlínis á vergangi hér á landi. Alls ekki hafi verið nóg að gert til þess að kynna þessu fólki réttindi sín heldur. Við þetta bætist að börn þessa fólks mega líka koma hingað, án þess að íslenska menntamálaráðuneytið hafi gert ráðstafanir varðandi skólagöngu þeirra. Þannig hefur fréttastofan traustar heimildir fyrir því að dæmi séu um að börn frá Austur-Evrópu dveljist hér mánuðum saman án þess að fá skólavist, þó að barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna kveði á um skýlausan rétt þeirra til að ganga í skóla. Verkalýðshreyfingin, samtök atvinnulífsins og stjórnvöld hafa undanfarið átt í viðræðum til að koma í veg fyrir að kjarasamningum verði sagt upp um næstu áramót eins og stefnir í vegna verðbólgu sem er nú sjö til átta prósent. Halldór Grönvold segir að Alþýðusambandið setji það á oddinn við endurskoðun kjarasamninganna að tekið verði á reglum um erlent vinnuafl. Á næstu dögum kemur til með að ráðast hvort Alþýðusambandið, Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld nái samkomulagi um þessi mál.
Fréttir Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun Sjá meira