Innlent

Sullenberger býst við afsökunarbeiðni

Jón Gerald Sullenberger.
Jón Gerald Sullenberger. Mynd/E.Ól

Einar Þór Sverrisson, lögmaður Jóhannesar Jónssonar Í Bónus, segir að þrátt fyrir að Ríkissaksóknari telji ekki grundvöll fyrir frekari rannsókn á kæru Jóhannesar, á hendur Jóni Gerald Sullenberger, fyrir rangar sakagiftir, sé það enn mat Jóhannesar að Sullenberger hafi borið hann röngum sökum. Jóhannes hefur ákveðið að óska eftir frekari rökstuðningi frá Ríkissaksóknara vegna þessarar niðurstöðu.

Jón Gerald Sullenberger segir í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í kvöld að niðurstaða Ríkissaksóknara, Boga Nílssonar, staðfesti að enginn grundvöllur hafi verið fyrir ásökunum Jóhannesar og Einars Þór Sverrissonar, lögmanns hans um að Sullenberger hafi borið ljúgvitni við yfirheyrslur og bæri ábyrgð á vanlíðan hans síðastliðin fjögur ár. "Ég hef frá fyrsta degi þessa máls sagt satt og rétt frá og mun gera það áfram. Það að Jóhannes í Bónus sé ekki lengur ákærður hefur ekkert með vitnisburð minn að gera en aðrar haldbærar ástæður hljóta að liggja að baki." Sullenberger segir ennfremur að hann búist við því að Jóhannes og lögmaður hans biðji sig afsökunar opinberlega á þessum frumhlaupi sínu.

Í yfirlýsingu lögmanns Jóhannesar Jónssonar, segir að það sé enn mat Jóhannesar að Jón Gerald hafi borið hann röngum sökum. Staðreyndin sé sú að Jóhannes var sýknaður af öllum sakargiftum í Héraðsdómi Reykjavíkur í mars síðastliðnum. "Þá hefur settur ríkissaksóknari ekki séð ástæðu til að gefa út nýja ákæru á hendur honum. Jóhannes er því með öllu saklaus af áburði Jóns Geralds," segir í yfirlýsingunni. Þar segir einnig að sú ákvörðun Ríkissaksóknara um að halda ekki áfram rannsókn á kæru Jóhannesar á hendur Jóni Gerald sé "byggð á því að sönnun á huglægri afstöðu Jóns Geralds til brotsins sé erfið." Jóhannes hefur ákveðið að óska eftir frekari rökstuðningi frá Ríkissaksóknara vegna þessarar niðurstöðu.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×