Málverkið við góðaheilsu á Norðurlöndum 6. júní 2006 15:28
Málverkið er við góða heilsu á Norðurlöndum. Það leiðir sýningin Carnegie Art Award í ljós en hún verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur á morgun Carnegie Art Award eru í senn verðlaun og sýning sem komið var á fót fyrir átta árum. Markmið verðlaunanna, sem eru ein þau stærstu í heimi á sviði lista, er að styðja við framúrskarandi listamenn á Norðurlöndum og efla norræna samtímalist. Því er farið með Carnegie Art sýninguna um öll norrænu ríkin og í ár verður einnig farið til Lundúna og Nice í Frakklandi. Verkin sem til sýnis eru í Hafnarhúsinu eru eftir 21 listamann en þeir voru valdir úr hópi 115 listamanna sem tilnefndir voru til þátttöku í sýningunni. Íslendingar eiga fjóra fulltrúa á sýningunni, þá Finnboga Pétursson, Steingrím Eyfjörð, Jón Óskar og Eggert Pétursson. Hafþór Yngvason forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur segir sýninguna sanna að málverkið hafi sterka stöðu á Norðurlöndum. Hann bendir á að í fyrsta sinn sé hljóðverk á sýningunni en það er einmitt eftir Finnboga Pétursson. Þegar fréttastofu bar að garði var einn listamannanna að leggja lokahönd á verk sitt. Það var hin 33 ára Josefine Lyche frá Noregi en hún málar nýtt verk á hverjum sýningarstað. Hún hefur stritað í tíu tíma á dag síðan á föstudag og er nokkuð ánægð með niðurstöðuna. Lyche segir að málverkið samanstandi af sparsli og blönduðum akrýllitum. "Ég málaði alls níu lög á vegginn og pússaði þau svo niður með slípara svo yfirborðið yrði alveg slétt. Ég nota mismunandi liti á hverjum stað og litirnir hér tákna græna náttúru landsins." Með verkinu segir Lyche vilja fá fólk til að velta fyrir sér málverkinu sem miðli. Það gerir hún á óvenjulegan hátt því ólíkt því sem gengur og gerist á söfnum má snerta verkið hennar "Þetta er skemmtilegt en maður má ekki snerta öll verkin, bara þetta. Þetta er tímabundið verk, það verður fjarlægt, málað yfir það, og því er gott að geta þreifað á því þann tíma sem það verður á veggnum," segir listakonan. Sem fyrr segir verður sýniningin opnuð á morgun en hún stendur til 20. ágúst.
Fréttir Innlent Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Innlent Fleiri fréttir Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Sjá meira